FRÉTTABRÉF MIÐFLOKKSINS 29. MAÍ, 2020
GOLFMÓT MIÐFLOKKSINS - 26. júní, 2020 - Takið daginn frá !
AÐALFUNDUR MIÐFLOKKSFÉLAGS SUÐVESTURKJÖRDÆMIS, 3. júní kl. 20
Aðalfundur Miðflokksfélags Suðvesturkjördæmis verður haldinn miðvikudaginn 3. júní nk. kl. 20.00 Í Hjallahrauni 9 í Hafnarfirði.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Miðflokksfélags Suðvesturkjördæmis
AÐALFUNDUR MIÐFLOKKSFÉLAGS HAFNARFJARÐAR, 4. júní kl. 17
Aðalfundur Miðflokksfélags Hafnarfjarðar verður haldinn fimmtudaginn 4. júní kl. 17:00 í félagsaðstöðu félagsins að Hjallahrauni 9 í Hafnarfirði.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
AÐALFUNDUR MIÐFLOKKSFÉLAGS AKUREYRAR OG NÁGRENNIS, 11. júní kl. 20
Aðalfundur Miðflokksfélags Akureyrar og nágrennis verður haldinn þann 11. júní kl. 20:00 í Sal Lions að Skipagötu 14 á 4. hæð.
Margrét Þórarinsdóttir er bókunardrottning Reykjanesbæjar
Miðflokkurinn var með meira en helming allra bókana sem lagðar voru fram í bæjarstjórn Reykjanesbæjar árið 2019 samkvæmt samantekt forseta bæjarstjórnar sem var lögð fram á fundi bæjarráðs nýverið. Víkurfréttir greindu frá þessu í nýjasta tölublaði sínu og útnefndu Margréti Þórarinsdóttur bæjarfulltrúa Miðflokksins bókunardrottningu Reykjanesbæjar. Alls voru 70 bókanir á bæjarstórnarfundum Reykjanesbæjar 2019 og voru meira en helmingur þeirra, eða 43 bókanir, lagðar fram af Miðflokknum.
FRÉTTIR AF ÞINGINU
Í vikunni voru þrír þingfundardagar.
Í óundirbúnum fyrirspurnartíma tóku Bergþór Ólason og Þorsteinn Sæmundsson þátt.
Bergþór Ólason spurði umhverfis- og auðlindaráðherra um nýtingu vindorku.
Þorsteinn Sæmundsson spurði fjármála- og efnahagsráðherra um opnun landamæra.
Í störfum þingsins tók Bergþór Ólason þátt og vakti þar athygli á því að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ekki enn sett reglugerð um breytingu á ýmsum lögum sem tengjast fiskeldi sem samþykkt voru á Alþingi um mitt síðasta ár.
Í vikunni var Birgir Þórarinsson málshefjandi sérstakrar umræðu um varnartengdar framkvæmdir á Suðurnesjum, þar sem utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra var til svara.
Karl Gauti Hjaltason tók einnig þátt í umræðunni.
Í flutningsræðu Birgis fór hann yfir varnartengd mál og beindi spurningum til ráðherra.
Seinni ræðu Birgis má sjá hér.
Karl Gauti fór yfir atvinnuleysi á Suðurnesjum og nefndi þar að framkvæmdir væru mikilvæg innspýting í atvinnulífið.
GREINAR OG PISTLAR
Pistill í Morgunblaðinu þann 27. maí eftir Þorstein Sæmundsson, þingmann Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Opnum Ísland - með varúð
Grein í Víkufréttum þann 27. maí eftir Birgi Þórarinsson, þingmann Miðflokksins í Suðurkjördæmi.
Hvers vegna varnarframkvæmdir á Suðurnesjum?
Grein í Fréttatímanum þann 27. maí eftir Baldur Borgþórsson, varaborgarfulltrúa Miðflokksins.
Og áfram heldur endaleysan
Skrifstofa Miðflokksins
Hafnarstræti 20 (2. hæð), 101 Reykjavík
Sími 555-4007 Netfang: midflokkurinn@midflokkurinn.is
Opnunartímar
Mánudaga - föstudaga kl. 13:00 - 17:00