Fréttabréf Miðflokksins

 

FRÉTTABRÉF MIÐFLOKKSINS 5. JÚNÍ, 2020 

 

 

Skrifstofa Miðflokksins 

Hafnarstræti 20 (2. hæð), 101 Reykjavík
Sími 555-4007  Netfang:  midflokkurinn@midflokkurinn.is
Opnunartímar
Mánudaga - föstudaga  kl. 13:00 - 17:00

 

 

 


 VIÐBURÐIR Á NÆSTUNNI 


VÖFFLUKAFFI UNGLIÐAHREYFINGAR MIÐFLOKKSINS, laugardaginn 6. júní kl. 12:00

Á morgun, laugardaginn 6. júní, býður Ungliðahreyfing Miðflokksins í vöfflukaffi kl. 12:00 - 14:00 á skrifstofu flokksins að Hafnarstræti 20 í Reykjavík.

Við hvetjum sem flesta til að kíkja til unga fólksins okkar í spjall, rjúkandi vöfflur og kaffibolla.

Allir velkomnir!

 


AÐALFUNDUR MIÐFLOKKSFÉLAGS AKUREYRAR OG NÁGRENNIS, fimmtudaginn 11. júní kl. 18:00

Aðalfundur Miðflokksfélags Akureyrar og nágrennis verður haldinn fimmtudaginn 11. júní kl. 18:00. 

Dagskrá:  Fundarstjórn kosin, skýrsla stjórnar, kosning stjórnar, önnur mál.

Fundurinn verður haldinn í Lions salnum að Skipagötu 14 á 4. hæð.

Stjórn Miðflokksfélags Akureyrar og nágrennis

 


VÖFFLUKAFFI Á SKRIFSTOFU MIÐFLOKKSINS, fimmtudaginn 11. júní kl. 16

Fyrsta vöfflukaffi Miðflokksins eftir samkomubann verður haldið fimmtudaginn 11. júní kl. 16:00 - 18:00 á skrifstofu flokksins að Hafnarstræti 20 á 2. hæð.

Við hlökkum til að sjá sem flesta.

Rjúkandi vöfflur og kaffi á boðstólnum.

Allir velkomnir.

 


GOLFMÓT MIÐFLOKKSINS, föstudaginn 26. júní, 2020

Miðflokksfélag Grindavíkur hvetur golfáhugamenn og konur til að taka föstudaginn 26. júní frá því þá verður hið árlega golfmót Miðflokksins haldið í Grindavík.

Mótið heppnaðist afar vel í fyrra og skapaðist skemmtileg stemmning meðal þátttakenda þrátt fyrir úrhellisrigningu.  

Miðflokksmeistarar 2019 voru þau Gerða Hammer og Karl Gauti Hjaltason.  

Nánari upplýsingar um skráningu og tímasetningu mótsins koma í næstu viku.  

Smellið hér til að skoða myndirnar af golfmóti Miðflokksins 2019.

 


 FRÉTTIR ÚR FLOKKSSTARFINU 


NÝ STJÓRN KJÖRDÆMAFÉLAGS SUÐVESTURKJÖRDÆMIS

Aðalfundur kjördæmafélags Suðvesturkjördæmis var haldinn miðvikudaginn 3. júní.

Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf en einnig hélt þingmaður kjördæmisins, Gunnar Bragi Sveinsson, stutta tölu.

Fundarstjóri var Jón Pétursson.  

Nýja stjórn skipa:

Una María Óskarsdóttir, formaður

Arnhildur Ásdís Kolbeins

Einar Baldursson

Íris Kristína Óttarsdóttir

Danith Chan

Varamenn:  

Aðalsteinn Magnússon

Sigurrós Kristín Indriðadóttir

Jón Kristján Brynjarsson

Hilmar Kristensson

      

Stjórn kjördæmafélags Suðvesturkjördæmis

Smellið hér til að skoða myndir af fundinum

 


NÝ STJÓRN MIÐFLOKKSFÉLAGS HAFNARFJARÐAR

Aðalfundur Miðflokksfélags Hafnarfjarðar var haldinn fimmtudaginn 4. júní.

Á dagskrá voru vejuleg aðalfundarstörf og kosning stjórnar.

Nýja stjórn skipa:

Arnhildur Ásdís Kolbeins, formaður

Gísli Sveinbergsson

Bjarney Grendal Jóhannesdóttir

Jón Kristján Brynjarsson

Elínbjörg Ingólfsdóttir

Varamenn:

Sigurður Þ. Ragnarsson

Sævar Gíslason

Hilmar Kristensson

Stjórn Miðflokksfélags Hafnarfjarðar

 


 

FRÉTTIR AF ÞINGINU

 

Í vikunni voru tveir þingfundardagar og tveir nefndardagar.

Bergþór Ólason tók þátt í óundirbúnum fyrirspurnartíma. 

Bergþór spurði þar ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um nýtingu vindorku.

Í störfum þingsins tóku Sigurður Páll Jónsson, Anna Kolbrún Árnadóttir og Ólafur Ísleifsson þátt.

Sigurður Páll fjallaði um stöðu hjúkrunar- og dvalarheimila á Covid tímum.

Anna Kolbrún Árnadóttir fjallaði um skimanir ferðamanna við komu til landsins.

Ólafur Ísleifsson fjallaði um svör við ósvöruðum fyrirspurnum á þessu þingi.

 


GREINAR OG PISTLAR


 

Grein eftir Sigurð Pál Jónsson, þingmann Miðflokksins í norðvesturkjördæmi.  Vísir 29. maí, 2020

Heibrigðisþjónusta ríkisrekin og ekki ríkisrekin


Þrjár greinar eftir Vigdísi Hauksdóttur, borgarfulltrúa Miðflokksins. 

Morgunblaðið 2. júní, 2020:

Laugavegurinn og lokunaráráttan 

 

Vísir þann 3. júní, 2020:

Græna planið, neyðarplanið og hallærisplanið

 

Grafarvogs- og Árbæjarblaðið þann 3. júní, 2020:

Að kunna ekki - eða vilja ekki lesa í aðstæður


Grein eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins.  Fréttablaðið þann 3. júní, 2020

Það þyrfti kylfu og gulrót


Grein eftir Karl Gauta Hjaltason, þingmann Miðflokksins í Suðurkjördæmi.  Bændablaðið þann 4. júní, 2020

Sveiflum haka og ræktum nýjan skóg