Afskiptaleysi stjórnvalda gagnvart Suðurnesjum verður að linna

Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, tók til máls í störfum þingsins á Alþingi í dag og ræddi um Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

"Ég vil undir þessum lið víkja að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Uppbygging stofnunarinnar hefur því miður ekki verið í takt við það mikla álag sem er á henni. Það vantar einfaldlega fjármuni, starfsaðstöðu og fleira starfsfólk til að hægt sé að veita þá þjónustu sem farið er fram á.

Bráðamóttaka Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja er sú bráðamóttaka á landinu sem tekur á móti næstflestum sjúklingum á eftir bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Þannig er hún töluvert stærri en bráðamóttakan á Akureyri. Sífellt fleiri íbúar á Suðurnesjum leita til heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir heilbrigðisþjónustu þar sem oft á tíðum er hægt að fá tíma hjá lækni, jafnvel samdægurs. Fyrir ekki svo löngu óskaði ég eftir símatíma hjá lækni við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Tímann gat ég fengið eftir tíu daga.

Heilbrigðisstarfsmenn segja mér að það sé sama hvaða stofnun við berum okkur saman við hér heima og erlendis, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sé einfaldlega of vanbúin til að sinna þeim mikla fjölda sem býr á Suðurnesjum, farþegum Keflavíkurflugvallar og ekki síst vaxandi fjölda hælisleitenda sem dvelja á svæðinu og þurfa einnig heilbrigðisþjónustu. Ég efa það ekki að starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja reyni hvað það getur til að sinna öllum sem leita til þeirra af bestu getu. En nú hafa alvarlegir atburðir gerst er varða læknisþjónustu hjá stofnuninni og bíður það mál rannsóknar. Suðurnesjamenn hafa áhyggjur af þróun mála.

Heilbrigðisyfirvöld, sérstaklega heilbrigðisráðherra, bera þá ábyrgð að gera öllum stofnunum kleift að sinna sínu hlutverki og veita góða þjónustu eins og lög kveða á um. Það er löngu tímabært, herra forseti, að efla Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og afskiptaleysi stjórnvalda gagnvart Suðurnesjum verður að linna."

Upptöku af ræðu Birgir í þingsal má sjá hér