"Enginn segir Alþingi fyrir verkum. Enginn!"

Ólafur Ísleifsson alþingismaður tók í dag til máls í Störfum þingsins og ræddi ummæli Mannréttindardómstóls Evrópu um Alþingi.  Sagði Ólafur alla alþingismenn eiga að sameinast um að mótmæla því hvernig talað er til Alþingis í dómi Mannréttindadómstólsins og það á fullveldisdegi Íslendinga. "Ég mótmæli því fyrir mitt leyti."

Ennfremur sagði Ólafur:  "Í dómi yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu 1. desember sl. er m.a. vikið að dómum Hæstaréttar Íslands og málsmeðferð Alþingis við afgreiðslu málsins. Dómurinn sýnist einkum snúast um hvort rökstuðningur Hæstaréttar fyrir því að dómarar Landsréttar séu skipaðir sem lögmætir handhafar dómsvalds í lagalegum og stjórnskipulegum skilningi hafi verið fullnægjandi. Athygli vekur að í dómi yfirdeildar Mannréttindadómstólsins er fjallað um hvernig við hæfi sé að Alþingi Íslendinga greiði atkvæði um tiltekið mál.

Herra forseti. Mér er ekki ljóst hvernig Mannréttindadómstóll Evrópu getur fjallað með þessum hætti um störf Alþingis. Hver og einn alþingismaður gat kallað eftir annarri framkvæmd. Þetta þýðir að atkvæðagreiðslan fór fram samkvæmt ákvörðun Alþingis, ákvörðun lýðræðislega kjörinna fulltrúa á fullvalda löggjafarsamkomu þjóðarinnar.

Herra forseti. Mér er tjáð af kunnugum að leitun muni að dæmi um að Mannréttindadómstóll Evrópu hafi talað með þvílíkum hætti til löggjafarþings í Evrópu. Má ég leyfa mér að minna á að Ísland er friðsælt ríki og farsælt. Ísland er lýðræðisríki og réttarríki. Ísland er menningarríki og hér býr menntuð og hæfileikarík þjóð. Ísland er fullvalda ríki með djúpar rætur í alþjóðlegu samstarfi. Mér er ekki ljóst hvernig Mannréttindadómstóll Evrópu getur talað til æðstu stofnunar fullvalda ríkis með þeim hætti sem gert er í umræddum dómi.

Herra forseti. Eins og sagt var á forsetastóli fyrir skemmstu: Enginn segir Alþingi fyrir verkum. Enginn. Ég tel að allir alþingismenn ættu að sameinast um að mótmæla því hvernig talað er til Alþingis í dómi Mannréttindadómstólsins og það á fullveldisdegi Íslendinga. Ég mótmæli því fyrir mitt leyti."

Upptöku af ræðu Ólafs í þingsal má sjá hér.