Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, tók til máls í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag og beindi fyrirspurn sinni um meðhöndlun sorps til umhverfis- og auðlindaráðherra.
Karl Gauti hefur í þrígang flutt tillögu um að stjórnvöld kanni þann kost að reisa sorpbrennslustöð hér á landi til að leysa sorpvanda okkar Íslendinga, sjá hér: Tillaga til þingsályktunar um byggingu hátæknisorpbrennslustöðvar.
Hér á landi höfum við verið að urða mestallt okkar sorp, eða um 200.000 tonn árlega. Einnig höfum við síðustu ár verið að flytja um 120.000 tonn af sorpi á ári hverju til annara landa til endurvinnslu.
Karl Gauti spurði hvaða lausnir ráðherra sæji fyrir sér í þessum efnum, sérstaklega í ljósi þess að urðun í Álfsnesi verður hætt innan tveggja ára.
Einnig spurði hann hvort ráðherra ætli að beita sér fyrir því að sorpbrennslustöð verði reist hér á landi. Tækni við brennslu sorps hefur fleygt fram síðustu ár og hafa flestar vestrænar þjóðir byggt umhverfisvænar sorpbrennslur í því skyni að losna við úrgang og framleiða um leið varma og raforku sem þær svo nýta.
Hér má lesa fyrirspurn Karls Gauta í heild sinni.
UPptöku af fyrirspurn Karls Gauta og svar ráðherra í þingsal má sjá hér