Framboðslisti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður var samþykktur með 77% greiddra atkvæða á félagsfundi kjördæmisins þann 19. júlí, 2021.
Vilborg Þóranna Kristjánsdóttir, lögfræðingur og sáttamiðlari, leiðir listann. Í öðru sæti er Tómas Ellert Tómasson, verkfræðingur og í þriðja sæti er Erna Valsdóttir, fasteignasali.
Framboðslistinn í heild sinni er eftirfarandi:
1. Vilborg Þóranna Kristjánsdóttir, lögfræðingur og sáttamiðlari
2. Tómas Ellert Tómasson, verkfræðingur og bæjarfulltrúi Miðflokksins í Árborg
3. Erna Valsdóttir, fasteignasali
4. Þórarinn Jóhann Kristjánsson, tölvunarfræðingur og kennari
5. Ásta Karen Ágústsdóttir, Laganemi og dómritari
6. Sólveig Bjarney Daníelsdóttir, hjúkrunarfræðingur
7. Óttar Ottósson, kerfisfræðingur
8. Vilborg Þórey Styrkársdóttir, meistaranemi í félagsráðgjöf
9. Jón Sigurðsson, tónlistarmaður
10. Sigurður Ólafur Kjartansson, lögfræðingur
11. Hólmfríður Þórisdóttir, íslenskufræðingur
12. Fabiana Martins De Almeida Silva, starfsmaður í heilbrigðisþjónustu
13. Daníel Þór Friðriksson, kennaranemi
14. Linda Jónsdóttir, einkaþjáfari
15. Erlingur Þór Cooper, sölumaður
16. Bjarney Kristín Ólafsdóttir, sjúkraliði og guðfræðingur
17. Örn Bergmann Jónsson, hótelstjóri
18. Guðmundur Bjarnason, sölumaður
19. Karen Ósk Arnarsdóttir, háskólanemi
20. Birgir Stefánsson, rafvélavirki og stýrimaður
21. Ágúst Karlsson, verkfræðingur
22. Atli Ásmundsson, fv. ræðismaður Íslendinga í Kanada
Eftirfarandi tilkynning barst fundinum frá Ólafi Ísleifssyni, þingmanni Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður:
Til að leysa þá pattstöðu sem upp er komin við uppstillingu á framboðslista Miðflokksins í Reykjavík norður hefi ég ákveðið að sækjast ekki eftir sæti á framboðslista flokkins í kjördæminu fyrir komandi Alþingiskosningar.
Þar sem ég verð á ferðalagi alla næstu viku hefi ég ekki tök á að sækja boðaðan fund en bið fyrir bestu kveðjur og árnaðaróskir til fundarmanna.
Með góðri kveðju,
Ólafur Ísleifsson
alþingismaður Miðflokksins í R-N