Ráðstafanir til að lækka eldsneytiskostnað í millilandaflugi

Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins, mælti fyrir þingsályktunartillögu sinni um ráðstafanir til að lækka eldsneytiskostnað í millilandaflugi á Alþingi í gær.

Með þingsályktunartillögunni er samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra falið að undirbúa lagafrumvarp þar sem kveðið verði á um ráðstafanir sem leiði til þess að eldsneytisverð í millilandaflugi lækki.  Slík breyting mundi styrkja stöðu ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og ýta undir dreifingu ferðamanna um landið.

Samkvæmt lögum um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara, nr. 103/1994, skal jafna flutningskostnað á olíuvörum eins og nánar er þar kveðið á um. Markmið laganna er að tryggja að eldsneytisverð sé hið sama um allt land til að jafna búsetuskilyrði og samkeppnisstöðu fyrirtækja.
Jöfnun á flutningskostnaði á hins vegar ekki við um eldsneyti sem er ætlað til útflutnings og fellur þar undir eldsneyti til millilandaflugs og því er eldsneyti dýrara á millilandaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum heldur en í Keflavík og Reykjavík.  Fyrstu umræðu er nú lokið og gengur tillagan nú til meðferðar hjá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.

Þingsályktunartillaga þessi var áður flutt á 148., 149. og 150. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga og er því endurflutt.  Lesa má þingsályktunartillöguna í heild sinni hér.  Upptöku af flutningsræðu Önnu Kolbrúnar má sjá hér.  Allir þingmenn Miðflokksins eru meðflutningmenn þessarar þingsályktunartillögu.