Sala Íslandsbanka

Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, tók þátt í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.  Hann spurði þar forsætisráðherra um sölu Íslandsbanka og þær upplýsingar sem komið hafa fram um að Íslandsbanki selji frá sér vanskilaútlán áður en bankinn verður seldur. 

Fyrirspurn Birgis má lesa í heild sinni hér: 

"Herra forseti. Hér á eftir munum við ræða áform ríkisstjórnarinnar um sölu á Íslandsbanka. Nauðsynlegt er að fá álit forsætisráðherra á máli sem tengist sölunni og verður að teljast alvarlegt. Í viðbótargögnum sem fjárlaganefnd fékk frá Bankasýslunni er kafli sem ber yfirskriftina Sala rekstrareininga Íslandsbanka. Þar segir Bankasýslan að eftir að hafa fundað með Íslandsbanka séu veigamikil rök fyrir því að Íslandsbanki selji frá sér vanskilaútlán áður en bankinn verður seldur. Í júní síðastliðnum voru vanskilalán um 27 milljarðar kr.

Herra forseti. Er það virkilega rætt hjá ríkisbanka að lántaki, fólk og fyrirtæki, ekki síst í ferðaþjónustu, þurfi að eiga við eitthvert innheimtufyrirtæki úti í bæ um endurskipulagningu lána sinna? Á að innleiða hér bandaríska stílinn þar sem lán í vanskilum eru seld til innheimtufyrirtækja á hrakvirði og þessi fyrirtæki herja á skuldarana fram á grafarbakkann? Eru stjórnendur ríkisbanka, opinber stofnun eins og Bankasýslan sem heyrir undir fjármálaráðherra, virkilega að leggja til að það verði innheimtufyrirtæki úti í bæ, hrægammar, sem fái að hamast á fólki og fyrirtækjum sem hafa orðið fyrir vanskilum vegna veirufaraldursins? Eru menn búnir að gleyma Drómamálinu þar sem skuldarar vegna hrunsins fengu engan stuðning og þurftu löng málaferli til að ná fram rétti sínum? Eru menn búnir að gleyma því þegar Fjármálaeftirlitið sagði innheimtufyrirtækinu Dróma að fara að lögum og Drómi sagðist ekki þurfa þess. Drómi var þekkt fyrir bíræfni í innheimtu og miskunnarleysi gagnvart minni máttar.

Hæstvirtur forseti. Er þetta þessi vandaði undirbúningur sem ríkisstjórnin hefur staðið fyrir svo að selja megi bankann? Að senda almenning og fyrirtæki í viðskiptum við Íslandsbanka sem hafa lent í vanskilum vegna veirufaraldursins í gapastokk innheimtufyrirtækja úti í bæ? Er þetta stefna ríkisstjórnarinnar, hæstvirtur forsætisráðherra?"

Upptöku úr þingsal og svar foræstisráðherra má sjá hér