Starfskjör launafólks og skyldutrygging lífeyrisréttinda - Frumvarp til laga

Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, mælti í dag fyrir frumvarpi sínu um breytingu á lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, nr. 55/1980, með síðari breytingum.

Markmið frumvarps þessa er að sporna við kjarasamningsbrotum á vinnumarkaði en samkvæmt nýlegri rannsókn Alþýðusambands Íslands hefur fjöldi þeirra mála er snúa að launaþjófnaði og kjarasamningsbrotum síðustu ár aukist og þau orðið alvarlegri. Slík brot snúa einkum að hópum sem þekkja síður réttindi sín á vinnumarkaði, svo sem erlendu starfsfólki, og ungu og tekjulágu fólki. Engin viðurlög eru við slíkum brotum. Í skýrslu samstarfshóps félags- og barnamálaráðherra um félagsleg undirboð og brotastarfsemi á vinnumarkaði, frá janúar 2019, var lagt til að lögfestar yrðu opinberar valdheimildir til að grípa inn í þegar alvarleg kjarabrot eru leidd í ljós og bent á að slíkar heimildir hefðu almenn varnaðaráhrif gegn kjarabrotum. 2

Með frumvarpi þessu er því lagt til að Vinnumálastofnun verði veitt heimild til að leggja stjórnvaldssekt á atvinnurekanda teljist hann hafa vísvitandi eða af stórfelldu gáleysi greitt launamanni laun eða önnur starfskjör sem eru lakari en umsamin lágmarkskjör á vinnumarkaði. Einnig er lagt til að aukið verði við 2. gr. sömu laga ákvæðum er kveði á um að stéttarfélög og trúnaðarmenn þeirra hafi fullnægjandi heimild til að kalla eftir upplýsingum um launakjör frá atvinnurekendum. Slíkt er nauðsynlegt svo unnt sé að staðreyna hvort kjarasamningum er framfylgt af hálfu atvinnurekanda. Stéttarfélögum og trúnaðarmönnum er einnig veitt heimild til að tilkynna Vinnumálastofnun um ætlaða háttsemi og leggja fram gögn því til stuðnings.

Jafnframt verði bætt við lögin ákvæðum er veita Vinnumálastofnun viðeigandi úrræði til að rannsaka mál til hlítar, auk þess sem hnykkt er á persónuverndarsjónarmiðum við meðferð gagna þótt skýrt sé að lög um persónuvernd nái yfir þau, og bætt við ákvæði um þagnarskyldu starfsmanna Vinnumálastofnunar.

Flutningsmenn telja brýnt að í lögum sé kveðið á um úrræði af þessu tagi til að ekki sé til staðar hvati til að greiða laun undir lágmarkskjörum án þess að viðurlög liggi við þeirri háttsemi. Úrræðið snýr einungis að því að sporna við kjarasamningsbrotum á vinnumarkaði og er óháð rétti launamanns til að sækja rétt sinn gagnvart atvinnurekanda með stuðningi síns stéttarfélags og eftir atvikum fyrir dómstólum.

Frumvarpið má lesa í heild sinni hér og flutningsræðu Birgis og umræðu í þingsal má sjá hér.


Flutningsmaður: Birgir Þórarinsson

Meðflutningsmenn:  Anna Kolbrún Árnadóttir, Bergþór Ólason, Gunnar Bragi Sveinsson, Karl Gauti Hjaltason, Ólafur Ísleifsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Páll Jónsson, Þorsteinn Sæmundsson.