Almennar aðgerðir versus handvals aðgerðir

Hvað myndi Gríska réttlætisgyðjan Þemis gera?  Þemisar aðgerðir versus Skjaldborgar aðgerðir ( Almennar aðgerðir versus handvals aðgerðir).

Á næstu dögum, vikum og mánuðum verður ráðist í stórtækar aðgerðir af hálfu ríkisstjórnarinnar.

Það er vel.

En hvaða aðferðafræði verður notuð skiptir öllu máli.

Sú aðferðafræði sem boðuð er af fjármálaráðherra í dag og ég er vonandi að misskilja, minnir um margt á Skjaldborg, aðferðafræði hinnar alræmdu norrænu velferðarstjórnar Steingríms J. og Jóhönnu Sigurðardóttur.

Hvaða aðferðafræði var Skjaldborg?

Jú, valið var hvaða heimili og fyrirtæki fengju aðstoð og hver ekki.

Hvað myndi Gríska réttlætisgyðjan Þemis gera?  Aðgerð Skjaldborg var ekki góð leið.  Sú aðferðarfræði leiddi af sér að svokallaðir ,"fá að lifa listar" og "dauðalistar" voru settir undir huliðshjálm ríkisleyndar í 110 ár!  Að grípa þurfi til 110 ára ríkisleyndar á aðgerð segir allt sem segja þarf um aðgerðina…..

Er það eitthvað sem við viljum að endurtaki sig?  Sigmundur Davíð Gunnlaugsson telur að almennar aðgerðir séu rétta leiðin.

Þannig er tryggt að allir njóti sama réttar.

Þannig er tryggt að allir verði varðir.

Það heitir á góðri íslensku réttlæti.

Veljum Þemisar aðferðafræðina.

Verjum alla.

Það er réttlætismál.

Vill nota tækifærið og senda ykkur öllum hlýjar hjartans kveðjur.  Stöndum öll saman og hjálpum hvert öðru í gegnum þær hremmingar sem nú ganga yfir.

 

Höfundur:  Baldur Borgþórsson, Varaborgarfulltrúi Miðflokksins í Reykjavík

Greinin birtist í Fréttatímanum þann 22. mars, 2020