Breytingatillögur Miðflokksins fullfjármagnaðar!

Miðflokkurinn leggur fram breytingatillögur við fjárlög fyrir árið 2020.
Breytingarnar hljóða upp á 4660 milljónir og eru allar fullfjármagnaðar og auka ekki á halla ríkissjóðs.
Miðflokkurinn leggur til að hagræðingarkrafa verði gerð á öll ráðuneytin. Það er orðið löngu tímabært að ráðast í uppstokkun á opinbera kerfinu og draga úr umsvifum hins opinbera. Hagræðingin mun skila ríkissjóði sparnaði upp á 1,1 milljarð króna. Auk þess er gerð sérstök hagræðingarkrafa á sameiningu Seðlabanka Íslands og FME upp á 350 milljónir króna. Samtals er því gerð hagræðingarkrafa á ríkisrekstur upp á 1450 milljónir á árinu 2020.
Helstu breytingarna eru þær að leggja aukið fjármagn til hjúkrunarheimila vegna rekstarvanda þeirra upp á 800 miljónir króna. Lagt er til að framlög til öryrkja verði aukin um 525 milljónir, annars vegar vegna hækkunar á frítekjumarki og framlag til þess að auka stuðningsstörf hins vegar.  Framlög til löggæslu, tollgæslu og landamæraeftirlits verða aukin um 550 miljónir króna. Miðflokkurinn leggur til enn frekari lækkun á tryggingagjaldi upp á 0.25%. Hækkun verði til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni upp á 250 milljónir. Fallið verði frá 10% hækkun kolefnisgjalds 
Nánar er gerð grein fyrir tillögunum í nefndaráliti Birgis Þórarinssonar fulltrúa Miðflokksins í fjárlaganefnd.