Breytt heimsmynd.

 Breytt heimsmynd.

Þegar við Íslendingar stóðum frammi fyrir því fyrir sex mánuðum að covid-19 veiran var komin inn í landið. Þá einhenti þjóðin sér eftir ráðleggingum þríeykisins og ákvörðun stjórnvalda að komast í gegnum þann „skafl, fár“ sem við okkur blasti. Síðan myndi „eðlilegt“ líf taka við. Samt segir sagan okkur að heimsfaraldrar eru hvað skæðastir í annarri bylgju. En við vildum trúa því að þetta væri öðruvísi núna.

Nú erum við stödd í annarri bylgju sem hefur sýnt okkur að þetta gæti orðið langhlaup. Viðbrögð stjórnvalda hafa verið að bregðast við með aðgerða pökkum.

Stærstu hagkerfi heims svo sem, Bandaríkin, Bretland, Japan og fleiri hafa mátt horfast í augu við hagtölur sem eru þær svörtustu í manna minnum, mesta samdrátt í landsframleiðslu síðan samantekt á þessum tölum hófst.

Þar við bætist, vaxandi atvinnuleysi í þessum löndum, sem ekki á rætur í  samdrætti í ferðamennsku, heldur í fjölda annara greina.

Það fyrsta sem fólk gerir þegar harðnar í ári er að skera niður „óþarfa“. Gefum okkur að allir fengju sína sprautu af bóluefni á morgun, þá tæki það hagkerfi heimsins langan tíma að rétta sig af eftir svona byltu. Við Íslendingar þurfum að búa okkur undir þá heimsmynd að ferðaþjónustan eins og hún hefur verið undanfarin ár muni ekki jafna sig á stuttum tíma.

Skoðanakannanir í fjölda landa undanfarið, á vilja fólks til ferðalaga, er vægast sagt lítill. Bendir þetta til að vonir um að þegar bóluefni berst þá muni ferðamönnum fjölga í fyrra horf, séu á sandi byggðar.

Covid-19 hefur þegar truflað matvælaframleiðslu í heiminum, og vöruflutninga, þar á meðal flutning matvæla. í ljósi þessa er fæðuöryggi okkar Íslendinga með eigin framleiðslu nauðsynlegt og raunhæft markmið.

Rafmagn með vatnsorku, jarðvarma eða vindorku hérlendis er hægt að framleiða með minni tilkostnaði en víðast annarstaðar í heiminum og því hæg heimatökin ef vilji er til staðar að nýta þá orku enn betur.

Við eigum erfið misseri í vændum. Ferðamaðurinn á hvíta hestinum er varla á leiðinni. Fæðuöryggi okkar veltur á framleiðslu utan landsteinanna. Hvernig erum við í stakk búinn til að takast á við þá stöðu að hugsanlega munu hlutirnir versna umtalsvert áður en þeir batna? Ég myndi í það minnsta leggja höfuðið rólegar á koddann  ef ríkisstjórnin ætti svör við þessum spurningum. Allavega er ákall eftir stefnu ríkisstjórnarinnar í baráttunni við það ástand sem nú ríkir. Almenningur og fyrirtæki kallar eftir þeim upplýsingum.

Sigurður Páll Jónsson.

Þingmaður Miðflokksins í NV kjördæmi.

Greinin birtist á Vísi 29.ágúst.