Ég er þingmaðurinn sem Ríkisútvarpið gleymdi

Ég heyri stundum talað um fólk sem berst fyrir því að fá að gleymast. Það er líklega fólkið sem Google man helst eftir. Sjálfum er mér ekki endilega tamt að trana mér fram, sem er líklega í mótsögn við það starfssvið sem ég hef valið mér síðustu árin. En nú hefur sem sagt komið í ljós að ég er þingmaðurinn sem Ríkisútvarpið var alveg búið að gleyma, nokkuð sem mörgum þótti skondið þar sem ég hef verið talinn hávaxnastur þingmanna síðan Sindri Sigurgeirsson hvarf af þingi.

En fyrir þá sem ekki vita hver ég er, þá er ég búinn að vera alþingismaður Norðvesturkjördæmis síðan 2017 og sit á þingi fyrir Miðflokkinn. Áður var ég varaþingmaður og í bæjarstjórn Stykkishólms. Ég er rafvirki frá Iðnskólanum í Reykjavík og hef skipstjórnar- og vélavarðarréttindi á 30 tonna skip. Ég hef unnið sem bifreiðarstjóri, rafvirki og sjómaður. Ég hef verið með eigin trilluútgerð og finnst stundum gaman að titla mig sem útgerðarmann. Það er kannski svolítið mikið í lagt en mínar bestu stundir eru þegar ég sigli minn sjó, gjarnan með syni mínum og við komum gjarnan með nokkra fiska að landi. Ég geri út frá Stykkishólmi sem mér finnst fallegasti bær landsins.

Ódrjúgsháls og bilaðasta ferjan

Og svo ég svari eins og fegurðardrottning þá eru áhugasviðin fjölmörg en fyrir utan fjölskyldu, körfubolta, kórastarf og Lions-klúbbinn minn (sem ég hef vanrækt of lengi) þá hef ég mikinn áhuga á því sem horfir til heilla fyrir kjördæmið mitt sem er víðlent og með margvíslega og fjölbreytta atvinnustarfsemi. Þannig má segja að áhugasvið mitt sé atvinnumál í sinni víðustu merkingu og svo getur maður ekki verið þingmaður fyrir Vestfirðinga og Vestlendinga án þess að hafa áhuga á samgöngumálum. Í mínu kjördæmi er til dæmis farartálmi sem heitir Ódrjúgsháls og við landsbyggðarmenn höfum fengið að eiga hann óáreittir vegna þess að skipulagsvaldið er suður í Reykjavík. Þá eigum við biluðustu ferju landsins og marga af lélegustu vegum landsins. Ég játa að ég er pínulítið gamaldags og tel að það eigi að styrkja og viðhalda byggð um allt land og þótt ég sé ekki hlutlaus þá finnst mér mikið um þann dugnað og kraft sem finna má í fólkinu í mínu kjördæmi. Þar er atvinnulífið fjölbreytt og kraftmikið sem er öllum landsmönnum til heilla. En um þetta hefur Ríkisútvarpið ekki áhuga á að ræða við mig og segist það þó vera útvarp allra landsmanna.

Ég sit í atvinnuveganefnd og eyði drjúgum tíma á fundum þar, meðal annars samtals um fimm tímum í vikunni þegar kom í ljós að Ríkisútvarpið vissi ekki að ég væri til. Og hvað gerði ég annað í þessari viku? Jú, ég átti um það bil 40 símtöl og samtöl við fólk í mínu kjördæmi sem hefur áhyggjur og áhuga á alls konar málefnum og sat tvo þingflokksfundi með félögum mínum í Miðflokknum. Auk annara funda sem þarf að sinna og undirbúnings fyrir þingumræðu.

Mikilvæg málefni sem ekki mega gleymast

Í vikunni gerði ég tvö málefni að sérstöku umræðuefni á Alþingi, annars vegar benti ég á að ýmsar mikilvægar stoðir þessa samfélags gætu ekki lengur haldið áfram að fjármagna starfsemi sína með því að níðast á veiku fólki. Hér er ég að tala um spilakassastarfsemi. Mér þótti miður að þurfa að brýna mig í ræðustól í garð jafn ágætra aðila og Háskóla Íslands, Rauða krossins og Landsbjargar en þessari starfsemi verður að linna. Eftir að hafa haft afskipti af störfum SÁÁ þá finnst mér hagsmuna fíknisjúklinga aldrei nógsamlega gætt. Ég er alveg tilbúinn til að rífast um það en Ríkisútvarpið sagði ekki frá þessu.

Þá stóð ég fyrir sérstakri umræðu í þinginu nú á fimmtudaginn um aðgerðir til að styrkja stöðu íslensks landbúnaðar. Ég lagði nokkrar spurningar fyrir viðkomandi ráðherra undir þessum lið enda tel ég að huga verði að matvælaöryggi landsmanna og að þeir hafi aðgang að hollum og næringarríkum mat. Það er óumdeilt að íslensk matvæli eru framleidd við hagstæðari og öruggari aðstæður en í mörgum þeim löndum sem flytja út matvæli í stórum stíl. En það þarf að styrkja þessa atvinnugrein og það vildi ég benda á þótt Ríkisútvarpið teldi þessa umræðu ekki fréttnæma.

Þetta er ég nú að bralla og hef gaman af þótt ég sé algerlega ótruflaður af Ríkisútvarpinu við mín störf. Það er kannski ekki svo slæmt fyrir mig persónulega en mér finnst stundum eins og þetta lýsi líka afstöðu Ríkisútvarpsins til kjósenda minna. Það finnst mér miður af því það á nú að heita útvarp allra landsmanna.

 

Sigurður Páll Jónsson, þingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi.

Greinin birtist í Morgunblaðinu þann 22. mars, 2021