Sala fullnustueigna Íbúðalánasjóðs

Þorsteinn Sæmundsson hefur undanförnum þremur árum sent inn 7 fyrirspurnir til félags- og barnamálaráðherra um hverjir heyptu fullnustueignir Íbúðalánasjóðs. 

Í gær, 15. júní, barst svar ráðherra við fyrirspurninni.   

    Fyrirspurn Þorsteins hljóðar svo:
     1.      Hversu margar fullnustueignir seldi Íbúðalánasjóður árlega 2008–2019, hvar voru þessar eignir og hvert var heildarsöluverð á hverju ári?
     2.     Hverjir voru kaupendur eignanna? Óskað er eftir upplýsingum um annars vegar einstaklinga og hins vegar fyrirtæki og eignarhald þeirra, einnig er óskað eftir afriti þinglýstra kaupsamninga þar sem Íbúðalánasjóður er afsalsgjafi og/eða lista yfir fasteignanúmer og söluverð hverrar fasteignar.

Svörin sem bárust eru eftirfarandi:

Í meðfylgjandi fylgiskjölum er að finna svör sem ráðuneytið fékk frá Íbúðalánasjóði við fyrirspurn þingmannsins.
Þarna er að finna annars vegar samanteknar umbeðnar upplýsingar sem fram koma í 1. tölul. fyrirspurnarinnar. Þá eru einnig í fylgigögnum listi yfir kaupendur fullnustueigna, kaupverð eignanna, fasteignamat þeirra við sölu, fasteignasöluna sem annaðist söluna fyrir seljanda og kaupenda. Einnig er að finna lýsingu á opnum söluferlum við sölu eigna, m.a. upplýsingar um auglýsingar, kynningarfundi, tilboðsfresti og opnun tilboða.

Þá er að finna í svörunum upplýsingar, sem vakin er athygli á, um samskipti Íbúðalánasjóðs við Persónuvernd vegna eldri fyrirspurnar sama efnis auk lögfræðiálits sem sjóðurinn aflaði vegna beiðni ráðherra um að sjóðurinn birti almennt allar upplýsingar um sölu eigna, t.d. á heimasíðu sjóðsins.

Vísað er að öðru leyti í meðfylgjandi fylgiskjöl.

Fylgiskjal I.

Greinargerð Íbúðalánasjóðs um sölu fullnustueigna.
www.althingi.is/altext/pdf/150/fylgiskjol/s1421-f_I.pdf


Fylgiskjal II.

Listi yfir kaupendur (einstaklinga), söluverð, fasteignamat o.fl.

www.althingi.is/altext/pdf/150/fylgiskjol/s1421-f_II.pdf

Fylgiskjal III.

Listi yfir kaupendur (lögaðila), söluverð, fasteignamat o.fl.

www.althingi.is/altext/pdf/150/fylgiskjol/s1421-f_III.pdf


Fylgiskjal IV.

Bréf Íbúðalánasjóðs til Persónuverndar 27. apríl 2018.
www.althingi.is/altext/pdf/150/fylgiskjol/s1421-f_IV.pdf

Fylgiskjal V.

Bréf Persónuverndar til Íbúðalánasjóðs 11. júní 2018.
www.althingi.is/altext/pdf/150/fylgiskjol/s1421-f_V.pdf

Fylgiskjal VI.

Bréf Íbúðalánasjóðs til Persónuverndar 18. desember 2018.
www.althingi.is/altext/pdf/150/fylgiskjol/s1421-f_VI.pdf


Fylgiskjal VII.

Bréf Persónuverndar til Íbúðalánasjóðs 7. febrúar 2019.
www.althingi.is/altext/pdf/150/fylgiskjol/s1421-f_VII.pdf


Fylgiskjal VIII.

Minnisblað um miðlun upplýsinga um kaupendur fullnustueigna.
www.althingi.is/altext/pdf/150/fylgiskjol/s1421-f_VIII.pdf

Hér er hlekkur á svarið á vef Alþingis.