Falsfréttin um Ráðhús Árborgar

Sökum villandi fréttaflutnings sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg hratt af stað í viðtali við Fréttablaðið þann 27. febrúar sl. af framkvæmdum í Ráðhúsi Árborgar, tel ég mig knúinn til að leiðrétta þær staðreyndavillur sem komu þar fram, til varnar starfsmönnum sveitarfélagsins.

Falsfréttin

Oddviti minnihluta Sjálfstæðisflokksins í Árborg gerði blaðamanni Fréttablaðsins grikk með því að greina honum ekki rétt frá þeim framkvæmdum sem nú eiga sér stað innanhúss í Ráðhúsi Árborgar og urðu tilefni forsíðufréttar blaðsins þann 27. febrúar sl. undir fyrirsögninni „Kostnaður fór langt fram úr áætlunum“. Oddvitinn fór þar frjálslega með staðreyndir og kynti undir sitt sjálfsprottna ófriðarbál með því að ýja að því við blaðamanninn að hér væri um að ræða sömu óráðsíuna og í borgarstjórn Reykjavíkur.

Í kjölfarið fór fréttin á ljóshraða um alnetið og úr urðu hinar frumlegustu falsfréttir á velflestum vefmiðlum landsins. Frumlegasta útgáfan af falsfréttinni þann daginn kom þó frá RÚV, „Fimm milljóna viðgerð endar í 100 milljóna framkvæmdum“.

Síðar sama dag ákvað svo óreynd fréttakona Ríkissjónvarpsins að renna austur fyrir fjall með myndatökumann. Viðtali hennar við Gísla Halldór Halldórsson, bæjarstjóra Árborgar, var í kjölfarið snúið á hvolf og klippt út öll hans orð til leiðréttingar á kolrangri fyrirsögn á vef RÚV. Af undarlegum ástæðum var viðtalið þannig klippt og snúið að það sem eftir stóð var ný furðufyrirsögn á forsíðu RÚV, „Telur eðlilegt að framkvæmdin hafi farið fram úr áætlun“. Það væri gaman að sjá viðtalið í heild sinni, því framkvæmdin, sem tengdist í sjálfu sér ekki umræddri viðgerð, hefur alls ekki farið fram úr áætlun.

Réttfréttin

Breytingarnar í Ráðhúsinu snúa ekki að því að skipta um gólfdúk á bókasafninu, fyrir fimm milljónir, heldur um að færa afgreiðslu Ráðhússins niður á jarðhæð með inngang á framhlið hússins og að bæta starfsaðstöðu starfsmanna á efri hæðum. Dúkurinn var allt önnur ákvörðun um viðhaldsaðgerðir í sama rými. Samþykkt fjárheimild breytinganna er 74 m.kr. og stendur verkið nú í um 60 m.kr., ekki í 100 m.kr.

Það hefur áður komið fram að ákvörðun um upphaf framkvæmdanna, sem var flýtt frá þeim áformum sem áður höfðu verið kynnt í bæjarstjórn, fór ekki sína réttu leið í stjórnkerfinu, það þrætir enginn fyrir það.

Með falsfréttum er iðulega reynt að villa um fyrir fólki og afvegaleiða. Í þetta sinn varð til falsfrétt hjá fréttamönnum RÚV sem gleyptu við og stílfærðu sögu sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg spann við blaðamann Fréttablaðsins.

 

Höfundur:  Tómas Ellert Tómasson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Árborg

Greinin birtist í Fréttablaðinu þann 12. mars, 2020