Fyrir nokkru stóð Markaðsstofa Norðurlands fyrir fundi á Akureyri um flugmál og var hann afar vel sóttur. Fram kom á fundinum að ekki er gert ráð fyrir millilandaflugi um Akureyrarflugvöll í drögum að grænbók um flugstefnu. Í þessum sömu drögum kemur fram að byggja eigi upp varaflugvöll á Egilsstöðum og það er virkilega gott en við frekari lestur kemur í ljós að ekki er ætlunin að hleypa farþegum út úr flugvélum á Egilsstöðum heldur á flugvöllurinn að verða nokkurskonar geymslustaður flugvéla þangað til hægt verður að fljúga þeim á áfangastað.
Undanfarin ár hafa ferðaþjónustuaðilar á Norðausturlandi lagt sig fram við að koma á fót heilsárs ferðaþjónustu. Með þeirri ákvörðun stjórnvalda að leggja ekki til krónu til uppbyggingar Akureyrarflugvallar næstu árin er óásættanlegt, það er furðulegt og jafnvel ósanngjarnt að stilla málum upp þannig að þegar uppbygging á Egilsstaðaflugvelli verður að veruleika og því ber að fagna að þá sé skyndilega dregið úr allri uppbyggingu á Akureyri. Varla þarf eitt að útiloka annað þegar ætlunin er að skilgreina flug sem almenningssamgöngur.
Undanfarin 8 ár hefur verið unnið hörðum höndum að því að koma á millilandaflugi um Akureyrarflugvöll, sveitarfélög hafa lagt til 90 milljónir til verkefnisins og ljóst er að um milljarður hefur skilað sér beint inn í hagkerfið. Þetta er í sjálfu sér ákveðið afrek þar sem því er haldið fram að flugvöllurinn á Akureyri sé sprunginn, hann beri ekki stórar flugvélar. Það er vitað að bæta þarf aðstöðu flugvallarins til þess að hægt verði að gera enn betur, klára þarf flughlaðið og ráðast þarf í stækkun flugstöðvarinnar, einnig þarf að jafna eldsneytiskostnað og viðhalda tilvist flugþróunarsjóðs.
Þó svo að þessum hlutum verið komið í lag er ekki þar með sagt að ekki eigi að byggja upp á Egilsstöðum. Það sem þarf er pólitísk ákvörðun, stefnumótun um að líta á landið sem eina heild og virkja slagorðið „Allt Ísland, allt árið“, það gagnast öllum. Það er því beinlínis nauðsynlegt að halda áfram að styðja við og styrkja enn frekar þá vinnu sem hafin er, annað er óábyrgt. Það er líka ágætt að hafa það í huga í þessu sambandi að það eru tapaðir fjármunir sem felast í því að stjórnvöld bakki endanlega út úr verkefninu núna, þetta er ekki aðeins byggðamál heldur er það þjóðhagslega hagkvæmt og okkur ber að opna fleiri gáttir inn í landið, líka á virkum dögum og ekki aðeins í hátíðarræðum.
Höfundur: Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins
Pistillinn birtist í Morgunblaðinu þann 28. október, 2019