Fréttabréf Miðflokksins 16. október, 2020
Skrifstofa Miðflokksins
Hafnarstræti 20 (2. hæð), 101 Reykjavík
Sími: 555-4007 Netfang: midflokkurinn@midflokkurinn.is
VIÐBURÐIR OG FRÉTTIR
RAFRÆNIR BÆJARMÁLAFUNDIR Á AKUREYRI
Miðflokksfélag Akureyrar og nágrennis hefur skipulagt nokkra rafræna bæjarmálafundi á næstunni á fjarfundakerfinu Zoom. Hlekkir á fundina munu birtast á facebook síðu Miðflokksins á Akureyri þegar nær dregur hverjum fundi.
Bæjarmálafundirnir verða haldnir mánudagana 19. október, 2. nóvember, 16. nóvember og 30. nóvember og byrja fundirnir kl. 20:00.
Allir velkomnir.
ÁBENDINGAR TIL ÞINGMANNA OG SVEITARSTJÓRNARFULLTRÚA MIÐFLOKKSINS
Þingmenn og sveitarstjórnarfulltrúar flokksins óska eindregið eftir því að fá sendar ábendingar frá flokksmönnum um málefni sem þörf er á að skoða betur.
Hægt er að senda póst á midflokkurinn@midflokkurinn.is og við komum skilaboðunum til viðkomandi fulltrúa.
SÍMATÍMAR ÞINGMANNA Í OKTÓBER - Ekki missa af þessu tækifæri
Enn er hægt að skrá sig á símtal við þingmenn Miðflokksins. Áhugasamir vinsamlegast skrái sig með því að senda tölvupóst á skrifstofu flokksins á netfangið midflokkurinn@midflokkurinn.is með nafni og símanúmeri og nafni þess þingmanns sem óskað er eftir að ræða við.
SKRIFSTOFA MIÐFLOKKSINS Í HAFNARSTRÆTI LOKUÐ FYRIR GESTAKOMUM
Vinsamlegast athugið að vegna hertra sóttvarnaraðgerða verður enn lokað fyrir gestakomur á skrifstofu Miðflokksins að Hafnarstræti 20 næstu viku.
Starfsmenn skrifstofunnar verða engu að síður að störfum og hægt er að hafa samband bæði á tölvupósti á midflokkurinn@midflokkurinn.is eða í síma 555-4007.
FRÉTTIR AF ÞINGINU
Í vikunni voru þrír þingfundir á dagskrá, þar sem störf þingsins og óundirbúinn fyrirspurnartími var á sínum stað, stjórnarmál voru á dagskrá ásamt þingmannamálum.
Í óundirbúnum fyrirspurnartíma tók Bergþór Ólason og Sigmundur Davíð Gunnlausson þátt.
Bergþór spurði dómsmálaráðherra hvaða skýringar hún teldi vera að fjöldi umsókna um alþjóðlega vernd sé hlutfallslega hærri hér á landi en í öðrum norrænum löndum. Sjá nánar hér.
Sigmundur Davíð spurði fjármála- og efnahagsráðherra um einkarekstur í heilbrigðisþjónustu. Sjá nánar hér.
Í störfum þingsins tóku Sigurður Páll Jónsson, Karl Gauti Hjaltason og Bergþór Ólason þátt.
Sigurður Páll vakti athygli á engin hækkun væri á fjárlögum til SÁÁ, þrátt fyrir aukinn vanda. Sjá nánar hér.
Karl Gauti ræddi þar um þau mál sem væru á dagskrá Alþingis og kallaði eftir málum sem sinna brýnum viðfangsefnum. Sjá nánar hér.
Bergþór hrósaði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna ákvörðun hans um að falla frá öllum gjaldskrárhækkunum Matvælastofnunar á árinu 2020. Sjá nánar hér.
Sigmundur Davíð mælti fyrir þingsályktunartillögu sinni um tímasetta áætlun um einföldun regluverks.
Með þingsályktuninni er forsætisráðherra falið að hafa forgöngu um að ríkisstjórnin geri tímasetta aðgerðaáætlun um einföldun regluverks. Markmið laganna er að sporna við þeirri þróun sem hefur verið þar sem að regluverk eru sums staðar orðin svo flókin og viðamikil að fyrirtæki og einstaklingar eiga erfitt með að fylgjast með réttarstöðu sinni.
Hér má lesa og horfa á ræðu Sigmunds og lesa þingsályktunartillöguna í heild sinni.
Þingmenn Miðflokks tóku þátt í umræðunni um þingsályktunartillöguna en allur þingflokkur Miðflokksins er á málinu.
Hér má sjá umræðuna um þingsályktunartillöguna í heild sinni á upptöku af vef Alþingis.
GREINAR OG PISTLAR
Grein eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson sem birtist í Morgunblaðinu þann 10. október, 2020
Grein eftir Ólaf Ísleifsson sem birtist á Vísi þann 10. október, 2020
Grein eftir Vigdísi Hauksdóttur sem birtist í Grafarvogs-, Grafarholts- og Árbæjarblaðinu þann 14. október, 2020
Ungt fólk trúir á landbúnaðinn, af hverju ekki ráðherra?
Pistill eftir Gunnar Braga Sveinsson sem birtist í Morgunblaðinu í dag, föstudaginn 16. október, 2020
Kjalarnes er Reykjavík
Grein eftir Vigdísi Hauksdóttur sem birtist í Morgunblaðinu í dag, föstudaginn 16. október, 2020
Grein eftir Önnu Kolbrúnu Árnadóttur sem birtist á Vísi í dag, föstudaginn 16. október, 2020
Hafnarstræti 20 (2. hæð), 101 Reykjavík
Sími: 555-4007 Netfang: midflokkurinn@midflokkurinn.is