Ný heimasíða
Ný heimasíða Miðflokksins fór í loftið í dag og erum við mjög ánægð með útkomuna. Á næstu dögum munu bætast við fréttir, greinar og fleira.
Þinglok
Á þriðjudaginn var samið um þinglok fyrir sumarhlé. Þriðja orkupakkanum var frestað fram á síðsumarþing og var gildistöku frumvarpsins um innflutning á hráu kjöti frestað til áramóta. Þing mun koma saman á ný miðvikudaginn 28. ágúst til að ræða þriðja orkupakkann.
Í gærkvöldi var þingfundi slitið kl. 20:20. Af því tilefni tóku alþingismenn og starfsfólk Miðflokksins hópmynd saman fyrir framan þinghúsið.
Skilgreining auðlinda
Í vikunni var samþykkt þingsályktunartillaga um skilgreiningu auðlinda sem Sigurður Páll Jónsson, þingmaður Miðflokksins lagði fram. Nánar má lesa um tillöguna hér.
Systkini saman á þingi
Í vikunni tók Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir sæti á Alþingi í fjarveru Gunnars Braga Sveinssonar. Nanna Margrét er systir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, en þetta er í fjórða sinn sem systkini sitja saman á Alþingi. Nanna tók virkan þátt í þingstörfum og hélt meðal annars ræðu um lagafrumvarp um sameiningu Seðlabanka Íslands og Fjárálaeftirlitsins. Einnig tók hún þátt í umræðu um fjármálastefnu 2020-2024. Nánar um þingstörf Nönnu má finna hér.
Sumargrill í boði ungliðahreyfingar Miðflokksins
Við minnum á sumargrill Miðflokksins, sem að þessu sinni er í umsjón ungliðahreyfingar Miðflokksins. Skráning fer fram hér.
Nú er fréttabréfið komið í sumarhlé fram í miðjan ágúst.
Hafið það sem allra best í sumar.