FRÉTTABRÉF MIÐFLOKKSINS
OPNUNARTÍMI SKRIFSTOFU MIÐFLOKKSINS
Vinsamlegast athugið breyttan opnunartíma í október
Skrifstofa Miðflokksins verður opin alla virka daga kl. 13:00 - 17:00 í október
Hafnarstræti 20, 2. hæð
Sími 555-4007
VIÐBURÐIR Á NÆSTUNNI:
OPINN FUNDUR MEÐ VIGDÍSI HAUKSDÓTTUR - Laugardaginn, 5. október kl. 10:30
Miðflokksfélag Reykjavíkur verður með opinn fund laugardaginn, 5. október kl. 10:30 í húsnæði flokksins að Hafnarstræti 20 (á 2. hæð).
Gestur fundarins verður Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins í Reykjavík.
Rjúkandi vöfflur og kaffi verða á boðstólnum.
Allir velkomnir!
RÆÐUNÁMSKEIÐ MIÐFLOKKSINS HEFST 7. OKTÓBER - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Gerumst ræðuskörungar!
Enn eru örfá sæti laus á næsta ræðunámskeið Miðflokksins og hvetjum við áhugasama til að skrá sig sem allra fyrst, en síðast komust færri að en vildu.
Námskeiðið byrjar Mánudaginn 7. október kl. 19:30 og er í 5 skipti (mánudaga kl. 19:30). Staðsetning er á skrifstofu flokksins að Hafnarstræti 20 (á 2. hæð).
Vinsamlegast skráið ykkur með því að senda póst á netfangið skrifstofa@midflokkurinn.is
FRÉTTIR AF VIÐBURÐUM LIÐINNAR VIKU:
Fjármálaráðstefna sveitarfélaganna 2019 var haldin í gær og í dag. Þingflokkur Miðflokksins tók á móti sveitarstjórnarfulltrúum í gærkvöldi og áttu þau gott spjall.
Miðflokkskonur hittust í Reykjavík og á Akureyri
Það var glæsilegur hópur Miðflokkskvenna sem hittist í kvöldmat og spjall á veitingastaðnum Skólabrú í Reykjavík á miðvikudaginn þar sem þær áttu skemmtilega kvöldstund saman.
Einnnig kom góður hópur Miðflokkskvenna saman á Icelandair hótelinu á Akureyri á dögunum í spjall og samveru.
Afmælisfundur Miðflokksins á Akureyri
Sunnudaginn, 29. september, stóð Miðflokksfélag Akureyrar og nágrennis fyrir afmælisfundi í tilefni af tveggja ára afmæli Miðflokksins.
Gestir fundarins voru þau Anna Kolbrún Árnadóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Það var glatt á hjalla á afmælisfundi Miðflokksins á Akureyri Anna Kolbrún Árnadóttir hélt erindi á afmælisfundinum
FRÉTTIR AF ÞINGINU - KJÖRDÆMAVIKA:
Þingmenn hafa farið út um allt land í vikunni, en kjördæmadagar voru þessa vikuna. Engir þingfundir voru á Alþingi heldur nýttu þingmenn vikuna í að fara í kjördæmi sín til að hitta kjósendur, sveitarstjórnarfólk og fyrirtæki.
Hér eru nokkrar myndir frá kjördæmavikunni. Hægt er að skoða fleiri myndir frá kjördæmavikunni á heimasíðu Miðflokksins, með því að smella hér.
Þingmenn og varaþingmenn Reykjavíkurkjördæmis heimsóttu lögregluna í Reykavík Þingmenn Norðurkjördæmis á leið á fund í Húsavík
Þingmenn Suðurkjördæmis tóku þessa fallegu mynd á leið sinni um Suðurland Sigmundur Davíð á ferð um norðurland í kjördæmaviku
GREINAR OG PISTLAR:
Grein eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson sem birtist í Morgunblaðinu þann 28. september, 2019:
Sjálfstæðisflokkurinn fjármagnar kosningaloforð Samfylkingarinnar
Grein eftir Þorstein Sæmundsson sem birtist í Morgunblaðinu þann 28. september, 2019:
Óttinn
Pistill eftir Bergþór Ólason sem birtist í Morgunblaðinu þann 30. september, 2019:
Hvað hafa skattgreiðendur gert ríkisstjórninni?
Grein eftir Karl Gauta Hjaltason sem birtist í Morgunblaðinu þann 3. október, 2019:
Atvinnumöguleikar eldra fólks
Grein eftir Sigurð Pál Jónsson sem birtist í Morgunblaðinu þann 3. október, 2019:
Auðlindir og auðlindagjöld
Endilega fylgið okkur á samfélagsmiðlum Miðflokksins og takið þátt í umræðunum:
MIÐFLOKKURINN