Haltu kjafti, hlýddu og vertu góður

Af hverju gengur mörgum drengjum svona illa að læra og miklu verr en stúlkunum? Er það vegna þess að þeir eru svona óþekkir og latir? Af hverju geta þeir ekki setið og hagað sér vel. Þá myndi allt ganga svo miklu betur?

Fyrirmyndarnemandinn

Viðmið um rétta hegðun er að fyrirmyndarbarnið eigi að vera stillt og þægt, læra og hlýða kennaranum. Afskaplega fáir drengir ná að uppfylla þessar væntingar hvað þá í langri kennslustund. Stúlkur eiga margar auðvelt með að haga sér svo vel líki.

Strákapör ekki liðin

Skólarnir eru almennt óþolinmóðir gagnvart því sem nefnt var strákapör fyrir nokkrum áratugum. Nú er slík hegðun oftar talin óviðunandi, jafnvel óeðlileg. Fyrirferðarmiklir drengirnir fá á sig stimpilinn „óþekkir“ jafnvel „ofvirkir“. Þörfum þeirra er ekki mætt og þeir finna sig ekki í náminu. Afleiðingin er sú að stórum hluta drengja líður illa í skóla. Einungis sú staðreynd ætti að hringja bjöllum um að lagfæringa sé þörf.

Vanlíðan og brottfall

Árangurinn er eins og við má búast, strákar standa sig almennt miklu ver en stúlkur. Og afleiðingarnar halda áfram að koma fram eftir því sem fram vindur. Þriðjungur drengja geta ekki lesið sér til gagns í lok grunnskólagöngu, meðan það hlutfall er mun lægra meðal stúlkna. Afleiðingar þessa fylgja strákunum fram eftir öllum ungdómsárunum. Unglingspiltar hverfa úr framhaldsskólunum. Miklu færri karlar stunda háskólanám og einungis 30% af þeim sem útskrifast með meistaragráðu úr háskólum eru karlar.

Djúpstæðar afleiðingar

Ungir karlar lenda í alls kyns klandri og sést það glögglega í öllum tölum, sem fjalla um tíðni afbrota, ofbeldis, fíkniefnaneyslu, fangelsisrefsinga og sjálfsvíga. Margir ungir karlmenn ná ekki tökum á lífi sínu lengi framan af ævi, öfugt við jafnaldra þeirra meðal kvenna.

Kveikja áhuga

Grunnurinn virðist vera læsi á fyrstu skólaárunum. Vandinn við að bæta lestur drengja er ekki óleysanlegur. Einungis þarf viðhorfsbreytingu og vilja. Gagnreyndar aðferðir þarf að nota. Kennslufræði nútímans virðist vera búin að afskrifa þær. Þrátt fyrir ábendingar fjölmargra lærimeistara virðist illa ganga að snúa kennsluaðferðum að þessu leyti. Til þess að ná leikni á hvaða sviði sem er þarf að ná undirstöðuatriðunum. Það er lykillinn að árangri.

Hrós, ærsl og keppni

Drengir þurfa öðruvísi örvun en stúlkur. Kennsluaðferðum sem snúa að drengjum þarf að breyta og sníða þær að þörfum þeirra. Þeim þarf að hrósa fyrir frammistöðu á annan mælikvarða en nú er ástundað. Leggja þarf meiri áherslu á uppbrot og keppni í námi drengja. Hættum að gera þá óörugga með sjálfa sig af því að þeir eru ekki nákvæmlega eins og kerfið krefst. Eflum líka strákana okkar!

Fyrirsögnin

Upphafsorð þessarar greinar er sótt í kveðskap eftir Kristján Níels Jónsson, sem nefndi sjálfan sig Káinn og eiga vel við efni greinarinnar um viðhorf til drengja í skólakerfinu. En vísan hljóðar svo í heild:

Ný vögguvísa

Farðu að sofa, blessað barnið smáa,

brúkaðu ekki minnsta fjandans þráa.

Haltu kjafti! Hlýddu og vertu góður!

Heiðra skaltu föður þinn og móður.

 

Höfundur:  Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi

Greinin birtist á Vísi þann 10. desember, 2020