Hvert er planið?

Undanfarna daga hefur sérfræðingateymi haldið upplýsingafundi um gang mála á blaðamannafundum. Ljóst er að faraldurinn sem nú gengur yfir heimsbyggðina mun hafa gríðarleg áhrif, bæði til skamms tíma og sennilega til lengri tíma.  Allar aðgerðir miða að því að verja þá sem veikastir eru fyrir og að allir sýni ábyrgð í verki svo að það geti orðið.

Á blaðamannafundi sem forystumenn ríkisstjórnarinnar héldu fyrir nokkrum dögum, þar sem kynntar voru aðgerðir í efnahagsmálum vegna COVID-19, kom fram hjá fjármála- og efnahagsráðherra að fyrirtæki sem lenda í tímabundnum rekstrarörðugleikum vegna tekjufalls verði veitt svigrúm, t.d. með lengri fresti til að standa skil á sköttum og opinberum gjöldum. Fjármála- og efnahagsráðherra sagði svo í sérstöku viðtali að lífvænlegum fyrirtækjum verði bjargað um súrefni svo þau geti starfað áfram, þar sem gert er ráð fyrir að áhrif faraldursins gangi fljótt yfir og við taki á ný eðlilegt starfsumhverfi þessara sömu fyrirtækja.

Ég vil leyfa mér að setja þessa áætlun fjármála- og efnahagsráðherra í samhengi við hvernig fyrirtæki hafa á undanförnum misserum tekið á sig hvert áfallið á fætur öðru.  Nægir að nefna, loðnubrest, fall WOW, óveður og erfiðleika vegna skorts á nauðsynlegu viðhaldi samgangna.  Allt þetta gerir það að verkum að færri og færri fyrirtæki sem voru lífvænleg falla ekki innan skilgreininga ráðherrans.  Ekki þarf annað en að líta til fyrirtækja á landsbyggðinni til þess að koma fljótt auga á að aðgerðir ríkisstjórnarinnar virka ekki eins fyrir landið allt. Hér er ekki einungis um að ræða fyrirtæki á suðvesturhorninu.  Í upphafi sátu ekki allir við sama borð.  Þeir sem reka fyrirtæki á landsbyggðinni hafa um langt skeið unnið hörðum höndum að því að halda sjó og nú þegar árstími vors og sumars er rétt handan við hornið eygðu margir rekstraraðilar betri tíma en því miður kom einn skellurinn enn.

Það er undarlegt að ríkisstjórnin ætli ekki að fara í almennar aðgerðir sem raunverulega gagnast litlu fjölskyldufyrirtækjunum um allt land, lækkun skatta á fyrirtæki ásamt því að virkja bankakerfið til þess að gefa sem flestum tækifæri til að lifa af þennan skell skiptir sköpum.  Vandinn varð ekki til í gær, heldur ekki í fyrradag, vandinn hefur verið fyrirsjáanlegur um nokkurt skeið og það hlýtur að vera skylda stjórnvalda að sýna skýran stuðning með aðgerðum sem virka til framtíðar.

Máttleysi og stefnuleysi ríkisstjórnarinnar er algert, boðaðar efnahagsaðgerðir hennar munu ekki miða að því að verja þá sem mest þurfa á því að halda einyrkja og minni fyrirtæki. Ríkisstjórnin er ekki að sýna stuðning sinn og ábyrgð í verki.

 

Höfundur: Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins

Greinin birtist á Vísi þann 13. mars, 2020