Ljósleiðarar og þjóðaröryggi

Fyrr í mánuðinum skilaði starfshópur skýrslu til utanríkisráðherra um málefni ljósleiðara. Öryggi fjarskipta er grundvallaratriði í öryggi og vörnum hvers ríkis. Í skýrslunni er minnt á að öryggi íslenskra fjarskiptakerfa hefur áhrif á öryggi vina- og bandalagsríkja. Mikilvægi fjarskipta gerir ljósleiðaramál að þjóðaröryggismáli.

Engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn

Fyrirhugað er að ráðstafa tveimur ljósleiðaraþráðum af þremur í streng umhverfis landið. NATO-stengur þessi var lagður fyrir um 30 árum til að þjóna ratsjárstöðvum á öllum landshornum. Ætlunin er að bjóða þessa þræði út og snúast tillögur starfshópsins einkum um aðferð við það.

Mikilvæg stoð í starfsemi Atlantshafsbandalagsins lýtur að netöryggi og öryggi lykilinnviða. Öryggi raforku- og fjarskiptakerfa eru þar á meðal. Sæstrengir líkt og ljósleiðarakerfin á landi gegna lykilhlutverki í fjarskiptum og gagnaflutningum milli bandalagsríkja. Ísland er mikilvægur hlekkur í samstarfi og samskiptum bandalagsríkjanna.

Netöryggi og þjóðaröryggi

Á leiðtogafundi í Varsjá í júlí 2016 gerðu bandalagsríkin samþykkt um netöryggi þar sem ríkin skuldbinda sig til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að efla varnir innviða og netkerfa. Áhersla var lögð á að fjarskipta- og netkerfi geti staðið af sér hættuástand og að forgangsaðgangur stjórnvalda á hættutímum sé tryggt.

Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið hafa eflt samráð sín í milli um utanríkis-, öryggis- og varnarmál, þar á meðal hernaðarlegt og borgaralegt öryggi.

Varnaðarorð varaforseta Bandaríkjanna

Aukin áhersla á fjarskipta- og netöryggi endurspeglast í viðbrögðum einstaka ríkja. Bandaríkin leggja mjög upp úr öryggi 5G-kerfa. Kom þetta glöggt fram á blaðamannafundi Mike Pence varaforseta Bandaríkjanna við Höfða í Íslandsheimsókn hans í september 2019 þegar hann varaði eindregið við viðskiptum við kínverska fyrirtækið Huawei í þessum efnum. Þýskaland gerir æ ríkari kröfur um innkomu þriðju ríkja inn á þýskan fjarskiptamarkað. Hér eru uppi öryggis- og varnarsjónarmið um upplýsingar og mikilvægi þess að tryggja öryggi lykilinnviða. Sömu sögu er að segja af öðrum Evrópuríkjum, svo sem Frakklandi og Bretlandi. Þetta á einnig við um okkar nánustu vinaríki á Norðurlöndunum. Nú þegar hafa Danmörk, Noregur og nú síðast Svíþjóð valið að nota búnað frá nánum bandalagsþjóðum í uppbyggingu 5G-farneta. Í öllum tilfellum var ákvörðunin grundvölluð á þjóðaröryggissjónarmiðum.

Huawei

Albert Jónsson fyrrum sendiherra og öryggisráðgjafi segir í nýlegri ritgerð á vefsíðu sinni að bæði Bandaríkin og Kína hafi beitt sér gagnvart ríkjum í Evrópu og víðar í Huawei-málinu. Huawei hefur náð mikilli útbreiðslu í heiminum en Kínverjar virðast standa höllum fæti hvað það varðar í ýmsum Evrópuríkjum. Nokkur þeirra hafa þegar hafnað samstarfi við Huawei, önnur sett ýmis skilyrði fyrir samstarfi.

Flokkurinn og ríkið

Segir Albert að sumar evrópskar ríkisstjórnir beri fyrir sig tengsl fyrirtækisins við kínversk stjórnvöld en fyrirtækinu beri samkvæmt sérstökum kínverskum lögum að láta stjórnvöldum Kína í té upplýsingar úr fjarskiptakerfum fyrirtækisins væri þess krafist. Þetta eru lög sem munu eiga almennt við kínversk fyrirtæki og eru um starfsemi leyniþjónustu og um gagnnjósnir. Þessi ríki segir Albert horfa jafnframt til þess hvers eðlis stjórnvaldið er í Kína, hvernig það hvílir á einræði kommúnistaflokksins og tilheyrandi lögregluríki.

Náin tengsl við stjórnvöld

Leyniþjónustur ýmissa Evrópuríkja hafa mælt gegn samvinnu við fyrirtækið, bent á fyrrgreind lög um skyldur kínverskra fyrirtækja gagnvart Kínastjórn. Segir Albert þær hafi almennt varað við Kína, stjórnvöldum þess og fyrirtækjum vegna iðnaðarnjósna, hugverkaþjófnaðar og vegna netöryggis.

Mikilvægt fyrir þjóðaröryggi

Mikilvægt er að þegar kemur að ákvörðunum sem lúta að net- og fjarskiptaöryggi stöndum við Íslendingar þétt með bandalagsþjóðum okkar í Atlantshafsbandalaginu og vinaþjóðum okkar á Norðurlöndum.

 

Ólafur Ísleifsson, þingmaður Miðflokksins 
Greinin birtist á Vísi þann 7. mars, 2021