Þétting byggðar - lýðheilsuvandi framtíðar

Þegar fólk velur sér framtíðarhúsnæði er að mörgu að hyggja. Stærð, staðsetning, umhverfið og náttúran í kring skiptir þar máli.

Mikil þétting byggðar virðist vera leiðarstef fjölmargra sveitarfélaga. Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Mosfellsbær, Garðabær, Hafnarfjörður og Seltjarnarnes hafa yfirlýst markmið um þéttingu byggðar. Áberandi er hve nýjar byggingar í þessum bæjarfélögum standa þétt. Íbúðir margra þessara nýju bygginga eru að öllum líkindum án nægilegrar dagsbirtu.

Ábendingar sérfræðinga

Hinn 31. október sl. skrifuðu þau Dr. Ásta Logadóttir verkfræðingur, Dr. Lárus S. Guðmundsson dósent við HÍ og Ólafur Hjálmarsson verkfræðingur grein í Kjarnann með yfirskriftinni: Þétting byggðar, lýðheilsa og lífsgæði. Þar fjalla þau í máli og myndum m.a. um mikilvægi birtu, hljóðgæða og umhverfis íbúðarhúsnæðis í nýbyggingum í Reykjavík. Í tillögum að breyt­ingum á aðal­skipu­lagi Reykja­vík­ur­borgar segi orðrétt: „Við skipu­lagn­ingu og hönnun íbúð­ar­byggðar verði gæði hús­næð­is­ins og nærum­hverfis þess í fyr­ir­rúmi. Í því sam­hengi þarf m.a. að horfa til stærða íbúða fyrir mis­mun­andi fjöl­skyldu­gerðir og sam­býl­is­form, birtu­skil­yrða, hljóð­gæða og loft­gæða í íbúð­um, sem og inn­görðum og nærum­hverfi hús­næð­is­ins, hæð bygg­inga og fjar­lægða milli þeirra, dýpt hús­bygg­inga og hlut­fall úti­svæða til leiks og dvalar þar sem sólar nýtur bróð­ur­part dags.“

Ákvæði í aðalskipulagi

Allt frá árinu 1966 hefur verið tiltekið í aðalskipulagi Reykjavíkurborgar að við byggingu íbúðarhúsa beri að taka tillit til hnatt­stöðu lands­ins og umhverf­is­að­stæðna. Þrátt fyrir það má auðveldlega sjá að mun þéttar er byggt nú en áður og því ekki farið eftir gildandi samþykktum.

Eitt er að þétta byggð og annað að gera það þannig að stuðlað verði að bættri lýðheilsu þeirra íbúa sem þar munu búa og sumir um aldur og æfi. Margir þættir geta haft áhrif á bætta lýðheilsu fólks. Flestir þekkja áhrif hreyfingar, heilsusamlegar fæðu og góðra samskipta á líðan. Nýrri rannsóknir á umhverfi fólks sýna að áhrif birtu og hljóðs skipta einnig miklu máli fyrir svefn og líðan.

Umhverfisaðstæður fólks skipta sem sé líka höfuðmáli og skipulagsyfirvöld um allt land ættu að vera meðvituð um staðsetningu íbúðarhúsa, með tilliti til sólarljóss, hávaða og umferðarmannvirkja.

Hverjir hagnast á þéttingu?

Hvað ræður þéttingu byggðar? Hver tekur ákvörðun um að byggja þétt? Þar sem þétt er byggt nýtur oft ekki nægrar dagsbirtu og hljóðvist er slæm. Er þétting byggðar svo brýn að horft er framhjá mælingum á hljóði og skuggavarpi? Er staðan ennþá svo að sérfræðingar um fyrirkomulag og not bygginga eru ekki fengnir að borðinu? Hér áður bar á því að sérfræðingar íþróttamála voru ekki fengnir til aðstoðar við byggingu íþróttamannvirkja með þeim afleiðingum að aðstaða gat orðið verri en ella. Hvers vegna eru lýðheilsusérfræðingar og sérfróðir menn um hljóðvist, birtu og umhverfi ekki í ríkari mæli fengnir að undirbúningi, skipulagi og hönnun íbúðarbyggða? Eru það fjárhagslegir hagsmunir byggingaaðila eða grandvaraleysi skipulagsyfirvalda sem ráða för? Gott væri að fá svar við þessum spurningum.

Fátt um svör

Í grein þeirra félaga í Kjarnanum nefna þeir að nýr forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hafi ekki svarað erindi þeirra þar sem til­lögur til úrbóta um bætt regluverk í þágu bættar lýðheilsu almennings eru settar fram. Ekki einu sinni að erindið hafi verið móttekið, þrátt fyrir óskir þar um. Það eru ekki góðir stjórnsýsluhættir.

Ég vil taka heilshugar undir nauðsyn bætts regluverks í þágu bættrar lýðheilsu fyrir almenning. Ég vil einnig hvetja almenning og fjölmiðla til þess að skerast í leikinn og fjalla í auknum mæli um betra lýðheilsuskipulag. Þétting byggðar má ekki leiða til þess að lýðheilsa almennings skerðist vegna skipulagsklúðurs.

 

Höfundur:  Una María Óskarsdóttir, uppeldis- menntunar- og lýðheilsufræðingur og varaþingmaður Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.

Greinin birtist á Vísi þann 16. desember, 2020