Fyrrverandi formanni Viðreisnar þótti viðeigandi að leita langt aftur til að finna sér verðugan andstæðing til að hreyta í. Það gerði hann nokkuð hressilega í pistli sínum hér á dögunum.
Andstæðingurinn á erfitt með að bera hönd fyrir höfuð sér enda er sá hinn sami, þ.e. Jón Magnússon fyrrverandi forsætisráðherra, löngu látinn og lést við störf sín fyrir land og þjóð í fylgd Kristjáns X. Jón gegndi starfi forsætisráðherra í um sjö ár og sat á þingi í allt að 20 ár. Pistilshöfundur gat ekki á sér setið og fullyrti að hann Jón blessaður hefði þótt „...sviplítill forystumaður, svo litlaus að sagt var að enginn vissi alveg hvar Jón Magnússon stæði í pólitík“. Það er hátt reitt til höggs. Höfundur virðist telja sig hafa haft efni á þessum orðum eftir sína „löngu“ setu í ráðherrastól og á hinu háa Alþingi.
Nýlega sá einn þingmaður Viðreisnar að of lítið er upp úr stjórnmálum að hafa. Sá vill nú byggja höfn ofan í minjar Minjastofnunar á Álfsnesi við Þerneyjarsund. Í kjölfarið virðist Viðreisn nú kalla á breytingar til að fylla það skarð. Byggja á nýja, litríka og fróma framtíðarsýn. Úrvalið er svo litríkt að fyrrverandi formaður flokksins fann sig knúinn til að koma fram og etja kappi við menn, bæði lífs og liðna. Helst liðna.
Fortíðardraumar fá Viðreisn til að tefja lagningu Sundabrautar. Nú er þráttað við Minjastofnun um gögn sem Minjasafn Reykjavíkur vann árið 2008 og Borgarsögusafn 2018 vegna Álfsness. Forstjóri Minjastofnunar segir nægt pláss fyrir Sundabraut utan allra fornminja. Það er engu að síður markvisst unnið að því að hanna Sundabraut ofan í miðja minjaheild og heila höfn að auki, allt fyrir Viðreisn, Pírata og Samfylkinguna. Hvers vegna er brautin ekki hönnuð þar sem plássið er fyrir hana? Þess í stað er bæði ráðist á látna menn og minjar forfeðranna. Þetta bjástur tefur áform um umhverfismat á Sundabraut og stuðlar að afturför, ekki framför.
Svo má geta þess að gas- og jarðgerðarstöð Sorpu virðist hafa verið hönnuð og byggð ofan í vegstæði Sundabrautar á Álfsnesi. Samhliða er eyðilagt vegstæði brautarinnar í Gufunesi, allt í boði Viðreisnar o.fl. Viðreisn er því flokkur afturhalds, flækjustigs og fortíðar.
ESB er fortíð. Fyrrverandi formaður Viðreisnar virðist alveg óhræddur við draugaganginn í þeirri umræðu. En hver er reynsla Breta af brexit? Sú reynsla á að verða Íslendingum víti til varnaðar. Ekki aðeins hótar ESB og hræðir heldur ógnar það og hamlar þróun. Eigi Bretar örðugt um vik á leið sinni úr gátt ESB, hvernig ætli Íslendingum gengi að fara út um þau svipugöng sem þaðan liggja? Sporin hræða og setja ekki ESB í forgang heldur djúpt inn í fortíðina. Það er fortíð miðstýringar og málalenginga.
Höfundur: Sveinn Óskar Sigurðsson, bæjarfulltrúi Mosfellsbæjar og situr í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins (SSH).
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu þann 24. september, 2020