Bóluefnavandi ríkisstjórnarinnar

Þingflokkur Miðflokksins hefur farið fram á að Alþingi verði kallað saman til að ræða þá alvarlegu stöðu sem nú er uppi varðandi bólusetningu landsmanna vegna COVID 19. Undanfarið hafa birst mjög misvísandi upplýsingar um þá samninga sem gerðir hafa verið um bóluefni og ekki síður hvernig bólusetningu verður háttað. Þar vegast upplýsingaóreiða og ráðaleysi stjórnvalda á. Því er nauðsynlegt að ríkisstjórnin verði knúin svara sem fyrst um áreiðanlegar og nákvæmar upplýsingar um hver raunveruleg staða er á samningum um virk og nothæf bóluefni og hvernig bólusetning þjóðarinnar mun ganga fyrir sig og hvenær þess er að vænta að þjóðlíf geti færst í hefðbundið horf.

Staðan núna

Eins og staðan lítur út núna eru ekki horfur á að nema um 25 þúsund Íslendingar verði búnir að fá bóluefni í lok 1. ársfjórðungs komandi árs. Um leið er á huldu hvernig bólusetningu verður háttað á 2. ársfjórðungi og þeim þriðja. Í gær var send út tilkynning frá stjórnvöldum um samning við lyfjaframleiðandan Janssen. Um var að ræða þriðja samning íslenskra heilbrigðisyfirvalda um kaup á bóluefnum við COVID 19. Samningurinn við Janssen var sagður tryggja bóluefni fyrir 235.000 einstaklinga. Áður var búið að gera samning um bóluefni frá Pfizer fyrir 85.000 einstaklinga og Astra Zenca fyrir 115.000 einstaklinga.

Möguleikar okkar

Vandinn við þessa samninga er sá að aðeins Pfizer framleiðir samþykkt lyf í dag. Það er einungis hugsanlegt að það verði hægt að hefja framleiðslu á lyfi Janssen í lok 3. ársfjórðungs næst árs og því hugsanlegt að bólusetning með því verði ekki fyrr en í lok árs 2021 eða fram á árið 2022. Það mun valda miklum skaða fyrir almenning og fyrirtæki í landinu. Af þessu sést að við getum á þessari stundu aðeins treyst á lyf frá Pfizer enda eina lyfið sem hefur verið heimilað hér á landi. Öll lönd keppst nú við að reyna að tryggja sér lyf frá þeim og mörg hafa þegar náð samningum um slíkt. Á sam atíma ríkir fullkomin óvissa um hvenær hægt verður að hefja framleiðslu á lyfi hjá Astra Zenca.

Beinir samningar

Það er brýnt að ríkisstjórnin reyni að koma á beinum samningaviðræðum við Pfizer og þá Moderna, sem er annar framleiðandi sem er með samþykkt lyf. Til að tryggja hag og öryggi almennings á Íslandi verður ríkistjórnin að virkja alla þá sem unnt er, og þar með talda einkaaðila, til þess að koma að viðræðum við Pfizer og Moderna þannig að hægt sé að fá afhent virk og nothæf lyf sem fyrst. Það verður ekki unað við að bíða lengur og fytlgjast með í fjarlægð hvernig aðrar þjóðir haga sínum málum í von um að molar detti af þeirra borðum.

 

Höfundur:  Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins í SV-kjördæmi

Greinin birtist á Vísi þann 23. desember, 2020