Leikur Yutong gengið lausum hala? Eða er þetta allt saman ,,rangur´´ misskilningur?

Fyrir tveimur árum benti undirritaður ítrekað á að það væri engin glóra í að Sorpa ,með miklum tilkostnaði, þrefaldaði framleiðslu á metangasi sem engin markaður var fyrir og á sama tíma skyldi Strætó kaupa 14 rafvagna af Yutong gerð, en ekki metanvagna.

Nú blasa afleiðingarnar við.

Sorpa:

Kostnaður vegna stækkunar moltu og metangasstöðvar Sorpu er kominn á 6 milljarð.

Hartnær tvöfalt hærri en til stóð.

Að auki eru uppi áhöld um, að mati sérfræðinga, að nýja sex þúsund milljóna stöðin verði úrelt áður en hún verður að fullu tilbúin.

Moltan þykir ekki góð og illa gengur að gefa hana, hvað þá selja.

Því safnast hún upp.

Hratt.

Á sama tíma logar sem aldrei fyrr í metangasbrennara Sorpu:

Fyrir stækkun voru nefnilega framleidd 6,600 bíl-ígildi af metangasi en markaður var aðeins fyrir 1.600.

Árum saman hefur Sorpa því þurft að brenna 5000 bíl-ígildum af metangasi árlega.

Til þess eins að losna við það.

Nú stækkar eldurinn hressilega og brenna þarf 18,200 bíl-ígildum.

Árlega.

Undirritaður vonar að moltufjallið verði byggt fjarri logum metangasbrennara Sorpu.

Annars gæti illa farið.

Strætó:

Yutong rafvagnarnir hafa verið vandamál frá byrjun.

Yfir vetrartímann þarf að skipta út vagni allt að 2-3 sinnum á vakt og ráða þurfti í tvær nýjar stöður til að annast það verk.

Afköst Yutong vagnanna eru því ekki góð, allt að þrjá slíka þarf til að sinna verki sem einn metan eða díselvagn skilar.

Reykjavíkurborg er meirihlutaeigandi bæði Sorpu og Strætó.

Undirritaður hefur mikið velt fyrir sér hverju sætir þegar ekki er hlustað á ábendingar og þær virtar að vettugi.

Hverjir stóðu eiginlega við stjórntækin í þessari vegferð?

Gæti einhver spurt.

Skoðum það nánar.

Hver var borgarstjóri?

Dagur B. Eggertsson

Hver var stjórnarformaður Strætó?

Heiða Björg Hilmisdóttir

Hver var forseti Yutong Eurobus Scandinavia?

Össur Skarphéðinsson

Nú getur undirritaður ekki fullyrt að þessir aðilar þekkist, en telur það líklegt þar sem öll eru þau og hafa verið í hærri lögum sömu félagasamtaka.

Undirritaður er á engan hátt að fella dóm, en óneitanlega eru þetta fróðlegar upplýsingar.

Hið minnsta.

 

Höfundur:  Baldur Borgþórsson, varaborgarfulltrúi Miðflokksins

Greinin birtist í Fréttatímanum þann 13. júní, 2020