Mega konur ekki lengur taka ábyrgð á eigin heilsu?

Árið 2019 stóð Krabbameinsfélagið fyrir tilraunaverkefni þar sem konur á aldrinum 23 til 40 ára fengu boð um ókeypis skimun fyrir krabbameini í leghálsi og brjóstum. Óhætt er að segja að verkefnið hafi gengið framar vonum þar sem þátttaka 23 ára kvenna í skimun fyrir leghálskrabbameini jókst um 132% á milli ára og þátttaka 40 ára kvenna í skimun fyrir brjóstakrabbameini jókst um 124% á milli ára.

Þetta framtak Krabbameinsfélagsins var og er lofsvert en nú bregður svo við að hækka á aldursviðmið skimana vegna brjóstakrabbameina úr 40 árum í 50 ár, engin haldbær rök hafa verið sett fram. Það voru að meðaltali 31 kona sem greindist með brjóstakrabbamein á aldrinum 40 – 49 ára á árunum 2015-2019. Það hlýtur að skipta máli, þessar konur skipta máli.

Nú á að ríkisvæða forvarnir. Færa á framkvæmdina inn í dýrustu úrræði heilbrigðiskerfisins, sjúkrahúsin. Landspítala er ætlað að skima fyrir brjóstakrabbameinum í samvinnu við sjúkrahúsið á Akureyri. Ef á að finna einhverja rökrétta leið í þessu þá velti ég því fyrir mér af hverju heilsugæslan var ekki valin sem fyrsti viðkomustaður, þar verða skimanir fyrir leghálskrabbameinum. Af hverju er ekki hægt að sjá hagræðið í því fyrir konur að þurfa aðeins á einn stað, af hverju er verið að stefna konum inn á sjúkrahús? Konurnar eru ekki veikar, þær fara í skimun vegna þess að þær vilja taka ábyrgð á eigin heilsu, nær hefði verið að lækka aldurinn niður fyrir 40 árin í stað þess að hækka hann.

Ég hef áður skrifað um þá reynslu að greinast með brjóstakrabbamein og ég verð að segja það að þessar fréttir um breytingar á fyrirkomulagi skimana fylla mig mikilli ónotakennd. Mér finnst mjög hæpið að halda því fram að of margar skimanir geri ógagn. Mín saga er sú að ég hafði bókað tíma í brjóstaskoðun en náði aldrei að nýta hann þar sem ég fann allt í einu fyrir einkennum í brjósti sem ágerðust hratt og þremur vikum síðar var ég komin í lyfjameðferð vegna krabbameins sem var dreift, langt gengið, þetta var árið 2011 og ég þá 41 árs. Ég er enn í lyfjameðferð og verð í henni um ókomna tíð. Ég hugsa um konur framtíðarinnar, konur sem ekki hafa náð 50 ára aldri, fá þær aðeins að komast í skimun fyrir brjóstakrabbameinum ef þær finna fyrir einkennum. Þurfa þær þá fyrst að fá tíma hjá heimilislækni til þess að fá tilvísun í klíníska skoðun á vegum LSH? Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu þá er biðtími eftir greiningu 5 – 6 vikur hér á landi sem er með öllu óásættanlegt. Einkenni koma fram þegar meinið er orðið að veruleika, það virðist gleymast í réttlætingunni. Það má aldrei gleymast að brjóstakrabbamein er langalgengasta krabbamein kvenna, hvaða skilaboð er verið að senda?

Höfundur:  Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins.

Greinin birtist fyrst á Vísi þann 11. janúar, 2021