Skákiðkun leiðir saman krakka með ólíkan bakgrunn -Uppgangur á Suðurlandi

Fyrir nokkru mælti ég fyrir tillögu minni til þings ályktunar um skák kennslu í grunnskólum. Tillagan er studd 14 þing mönnum úr fimm flokkum, en þar er lagt til að menntamála ráð herra verði falið að kanna hvort tilefni sé til þess að skákkennsla verði hluti af aðalnámskrá grunnskólanna.

Sterkar menningarlegar rætur

„Tafl em eg örr at efla, íþróttir kann eg níu“, þetta eru fleyg upphafsorð vísu sem Rögnvaldur jarl kali í Orkneyjum kvað. Skáklistin á sér sterkar rætur í íslensku þjóðlífi og bera Íslendingasögurnar þess glögglega merki. Talið er að skákin, eins og hún þekkist í dag, hafi borist hingað til lands síðla á 12. öld, en fram að þeim tíma hafi menn stundað hið forna hnefatafl, stundum ritað hneftafl.

Þjóðaríþrótt

Íslendingar hafa löngum átt snjalla skákmenn, en um miðja 20. öld eignuðumst við skákmenn á heims mælikvarða, fyrstan Frið rik Ólafsson stórmeistara sem var einn af þjóðhetjum hins unga lýðveldis. Skákiðkun hér lendis tók mikinn kipp þegar heims meistaraeinvígið var haldið hér á landi sumarið 1972 og þeir Bobby Fischer og Boris Spassky tókust á. Mikill áhugi er enn á þessum atburði nær hálfri öld síðar og fjöldi gesta leggur leið sína að grafreit heimsmeistarans Bobby Fischers í Laugardælum og heimsækir Fischersafnið á Selfossi.

Margvísleg, jákvæð áhrif á nemendur

Fjöldi rannsókna er til um jákvæð áhrif skákiðkunar á nem endur. Í þeim kemur fram að skákkennsla hafi góð áhrif á námsgetu, einbeitingu, ímyndunar afl, sjónminni, for sjálni, ákvarðanatöku, grein ingu á úrlausnarefnum, óhlut bundna hugsun, áætlunargerð, fjölþættar lausnir, þrautseigju, félagsleg tengsl og samheldni. Þetta kom meðal annars fram í skýrslu nefndar sem mennta mála ráðherra skipaði 2013 til að kanna kosti skákkennslu í grunnskólum. Við skák iðkun þarf að læra og fylgja ákveðnum leikreglum, nota ímynd unar aflið, bera saman mismunandi möguleika, beita rökhugsun og móta áætlanir. Allt eru þetta eiginleikar sem mikilvægt er að nemendur þrói með sér.

Skák leiðir saman börn með ólíkan bak grunn Um gildi skák iðkunar til að efla fél ags leg tengsl og samheldni innan skóla segir í fyrrnefn dri skýrslu: „Það sem vakið hefur hvað mesta eftirtekt í rann sóknum seinni tíma á áhrifum skáklistarinnar í skólastarfi er hversu vel skákin hefur reynst félagslega og þá sem samfélagslegt tæki innan veggja skólans.“ Þá segir að skákiðkun leiði saman ólíka hópa krakka með mismunandi bakgrunn sem að öðrum kosti leiða jafnan ekki saman hesta sína. Þannig stuðli skák í skólum að því að nemendur kynnist og eigi samskipti og þjappi saman ólíkum hópum nemenda sem að öðrum kosti hafa tilhneigingu til að einangrast hver frá öðrum.

Brúar bil

Í sænskum rannsóknum hafa kennarar nefnt hversu gott tæki skák væri til að byggja upp bekkjar anda og efla félags færni nemenda þar sem í skák séu allir jafnir óháð kyni, tungumálakunnáttu o.fl. Þá geti skákkennsla nýst nemendum sem eigi í erfiðleikum með að einbeita sér að hefðbundnu námi.

Staðan í Evrópu

Skák hefur verið innleidd í aðalnámskrá nokkurra ríkja og 15. mars 2012 samþykkti Evrópuþingið yfirlýsingu þess efnis að aðildarríki Evrópu sambandsins skyldu innleiða skák kennslu í mennta kerfi land anna. Í yfirlýsingunni kemur fram að skák sé aðgengilegur leikur fyrir börn óháð félagslegri stöðu sem geti aukið félagsfærni þeirra og dregið úr mismunun. Þá hafi skák góð áhrif á einbeitingu, þolin mæði, þrautseigju, sköpunar gleði, innsæi, minni og rökhugsun óháð aldri barna.

Uppgangur á Suðurlandi

Tillagan hefur hlotið jákvæðar undir tektir hjá mörgum umsagnar aðilum og yfirvöld í Ár borg tóku henni fagnandi, enda ríkir á Suðurlandi mikil og rík skákhefð. Skemmst er að minnast skákhátíðar haustið 2019 á Selfossi þar sem félagar í Skákfélagi Selfoss og nágrennis sönnuðu stórhug sinn með glæsilegu mótshaldi. Í tengslum við hátíð ina stóð Skáksambandið fyrir kennara námskeiði þar sem kennari var Jesper Hall, formaður kennslunefndar Evrópska skáksamband sins. Mikill uppgangur hefur verið í skáklífinu á Selfossi á undanförnum miss erum. Keppir skákfélagið nú á meðal þeirra bestu í deilda keppni Skáksambands Íslands, sem er stærsta og fjöl mennasta skák mótið á hverju ári. Mikil tækifæri eru tengd skák á Suðurlandi og upptaka skák kennslu í skólum mun án efa efla og styrkja við skáklíf á Suðurlandi.

 

Höfundur:  Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi

Greinin birtist í Dagskránni, Fréttablaði Suðulands, þann 13. janúar, 2021