Það sem ég vissi ekki að ég vissi

Heilbrigðisráðherra mælti fyrir frumvarpi um svokallaða afglæpavæðingu neysluskammta fíkniefna á fyrsta þingdegi eftir páska. Frumvarpið er skilgetið afkvæmi Pírataflokksins, en þeirra helsta hugðarefni er að lögleiða vörslu og neyslu eiturlyfja í litlum skömmtum og beita þeim rökum að með því sé verið að hjálpa vímuefnasjúklingum. Staðreyndin er sú að sjúklingum er ekki refsað og nánast óþekkt með öllu að einhver sé dæmdur fyrir vörslu smáskammta. Enginn ætti þó að vera á sakaskrá fyrir bernskubrek eða fyrir að hafa misstigið sig.

Það sem ég veit

Umræða um fíkniefnamál er oft tilfinningaþrungin og rökum ekki tekið. Umburðarlyndi fyrir því sem aðrir segja er ekkert og rök þeirra sem starfa við meðferðar- og forvarnarstarf skipta engu máli. Aukið aðgengi eykur neyslu, það er staðreynd, á það við um öll efni sem valda fíkn. Viðhorf til fíkniefna skipta hér höfuðmáli en þau hafa breyst undanfarin ár og áratugi og er staðan sú að mörg eiturlyf eru böðuð dýrðarljóma.

Það sem ég veit að ég veit ekki

Lausn á fíkniefnavandanum er sennilega afar flókin. Vandinn er margþættur og kemur inn á mörg svið. Við getum tekið upp aðferðir sem notaðar hafa verið í öðrum löndum um það deilir enginn. Gerum við það verðum við að vera viss um að við séum að takast á við sams konar vanda. Aðferð sem notuð er í heróínborginni Osló virkar ekki endilega hér. Draumsýn Pírata um að Þingholtin verði Amsterdam Norðurlanda verður að skoðast í því ljósi að í Amsterdam var stjórnlaus neysla sem ekkert var við ráðið. Af þeim sökum þurftu yfirvöld þar að grípa til örþrifaráða. Vonandi ber okkur gæfu til þess að fara aðrar leiðir.

Það sem ég vissi ekki að ég veit

Íslendingar eru ekki að hefja baráttuna við vímuefni. Notkunin og úrvalið hefur aukist og því miður aðgengi. Afleiðingarnar eru þær að fjöldinn allur líður miklar þjáningar, neytendur og aðstandendur þeirra. Vandinn er oft falinn. Enn er það svo að neysla eiturlyfja er ekki viðurkennd. Hefur það ekkert með sjúklinga að gera heldur verður að koma í veg fyrir að skilgreiningar neysluskammta verði ekki mistúlkaðar. Á ráðherra hverju sinni að skilgreina neysluskammt með reglugerð? Hvað er neysluskammtur? Skammtur eins í tíu daga getur verið söluvara, en framboð söluvöru eykur neyslu. Skammtastærð eins getur verið banvæn öðrum.

Það sem ég vissi ekki að ég vissi ekki

Í umræðunni í þinginu voru menn sakaðir um að misskilja hugtök, hafa annarlegar hvatir og jafnvel að vilja veiku fólki illt. Einn þingmaður stökk upp á nef sér þegar eiturlyfið LSD var kallað fíkniefni. Sinn er hver þvergirðingshátturinn.

Þegar við teljum okkur vera að feta í fótspor annarra þjóða verður okkur að bera gæfu til að feta öll sporin. Frumvarpið sem lagt var fram tekur á engan hátt á heildarvandanum en vandinn kallar á margþættar aðgerðir. Ein aðgerð getur kallað fram meiri vanda en við höfum. Viljum við taka slíka áhættu?

 

Sigurður Páll Jónsson, þingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi

sigurdurpall@althingi.is

Greinin birtist á Vísi þann 13. apríl, 2021