Það sem ekki má ræða en verður að ræða

Má ekki ræða hvað sem er? Nei, það má ekki.

Svarið við þessari spurningu er óþægilegt þar sem við teljum okkur búa í landi þar sem lýðræði ríkir, mál- og skoðanafrelsi. En ef þú hefur ekki sömu skoðun eða talar með sama hætti og umræðustjórarnir þá er vegið að þér með ásökunum um annarlegar skoðanir. Umræðustjórarnir velja hvað er rætt og stýra umræðunni, því er hætta á að almenningur heyri bara það sem umræðustjóranum finnst „rétt“ en ekki öll sjónarmið og geti þannig lagt sjálfstætt mat á efnið.

Í skýrslu ríkislögreglustjóra, „Skipulögð brotastarfsemi á Íslandi, áhættumatsskýrsla greiningardeildar ríkislögreglustjóra“ frá maí 2019 segir m.a.: „Rannsóknir lögreglu leiða í ljós skipulagða misnotkun tiltekinna erlendra afbrotamanna og -hópa á opinberum þjónustukerfum á Íslandi. Líklegt er að í einhverjum tilvikum njóti hópar þessir aðstoðar íslenskra ríkisborgara og/eða erlendra manna sem búsettir eru á Íslandi. Þær upplýsingar sem lögregla miðlar til greiningardeildar ríkislögreglustjóra sýna án nokkurs vafa að brotalamir er að finna í opinberum kerfum, jafnt innan stofnana sem og í samstarfi þeirra. Lögregla þekkir dæmi þess að einstaklingar tengdir hópum þessum hafi komið til landsins undir því yfirskini að leita alþjóðlegrar verndar.“

Síðar segir í sömu skýrslu: „Rannsóknir lögreglu leiða í ljós að einstaklingum sem tengjast þessum þremur hópum [glæpahópum] hefur verið veitt alþjóðleg vernd á Íslandi m.a. á grundvelli kynhneigðar. Nokkrir þessara karlmanna frá íslömsku ríki hafa verið kærðir fyrir kynferðislega áreitni gagnvart konum hér á landi.“

Í annarri skýrslu ríkislögreglustjóra frá 2017 um sama efni segir: „Á þeim tveimur árum [frá 2015] sem liðin eru frá því mati hafa aðstæður í Evrópu breyst til hins verra, meðal annars vegna hins mikla fjölda flóttamanna sem Evrópa hefur tekið á móti og er nú svo komið að mati Evrópulögreglunnar að um 65% þeirra skipulögðu glæpahópa sem leggja stund á fíkniefnaviðskipti eru samhliða virkir á öðrum sviðum glæpa svo sem í viðskiptum með falsaða vöru, mansali og smygli á flóttafólki.“

Mörg okkar hafa varað við því undanfarin ár að glæpamenn nota sér neyð fólks og velferðarkerfi Vesturlanda til að hagnast. Við höfum líka varað við þeirri þróun sem verið hefur í nágrannalöndum okkar og að sú þróun muni verða á Íslandi. Á þetta hefur ekki verið hlustað og við sökuð um illan vilja í garð hælisleitenda og flóttafólks. Engu skiptir þótt bent hafi verið á hvernig við getum best hjálpað þeim sem sannarlega þurfa hjálp.

Þetta hefur ekki mátt ræða en það verður að gera og læra af mistökum annarra. Lengi hefur lögreglan bent á hættuna af skipulagðri glæpastarfsemi. Nú ætlar ráðherra að gera „eitthvað“, enda stutt í kosningar.

 

Höfundur:  Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Suðvesturkjördæmis og þingflokksformaður Miðflokksins 

Pistillinn birtist í Morgunblaðinu þann 1. mars, 2021