Fátt tengir mann meira við umhverfið en að fá að sigla út í morgunsárinu og dýfa færi í sjó. Við trillukarlar vitum að við eigum allt undir hreinleika sjávarins og góðri umgengni við hann. Fegurðin liggur í hinu smáa og notagildið í hreinleikanum. Slíkar veiðar smábáta skjóta stoðum undir fjölbreytt atvinnulíf sjávarbyggða á landsbyggðinni. Mjór er mikils vísir og hver smábátur leiðir af sér mörg störf í heimabyggð. Þetta eru störf við vélaviðgerðir, þjónusta við bátana, fiskmarkaðir, fiskflutningar og margt fleira. Allir tengjast í eina keðju sem á allt undir hreinleika og vernd náttúrunnar. Vissulega getur verið vandasamt að tryggja þetta band hreinleikans, eins og ég vil kalla það, en það er hægt og við erum stöðugt að bæta okkur.
Ég sem þingmaður Miðflokksins er oft spurður um stefnu flokksins í umhverfismálum. Þá getur verið freistandi að vitna til reynslu minnar af sjómennsku en segja má að stefna flokksins hverfist um skynsama og ráðdeildarsama nýtingu í sátt við umhverfið.
Umhverfismál eru mikilvægur málaflokkur en sumir stjórnmálaflokkar nota þau fyrst og fremst til þess að koma öðrum áhugamálum sínum í framkvæmd, svo sem meiri skattlagningu og auknu stjórnlyndi.
Við Miðflokksmenn viljum hins vegar leggja áherslu á jákvæða hvata fremur en neikvæða til að ná fram markmiðum umhverfisverndar.
Að tryggja vernd og viðgang náttúru landsins og alls umhverfis jarðarinnar er okkar stóra verkefni. En miklu máli skiptir hvernig við nálgumst það þannig að tryggt sé að árangur náist á sem skilvirkastan og besta máta. Við Miðflokksmenn bendum á að skynsemisstefnan býður að hlusta á hugmyndir að lausnum frá öllum hliðum og velja þá bestu, eða blanda þeim saman til að ná enn betri árangri. Nú sem endranær bíða fjölmörg flókin úrlausnarefni sem krefjast skynsamlegra lausna og stjórnmálamanna sem eru tilbúnir að berjast fyrir þeim.
Heildaráhrif skipta mestu
Í umhverfismálum er nauðsynlegt að líta til heildaráhrifa á heimsvísu fremur en að skoða aðeins áhrif stefnu og aðgerða innan landamæra Íslands. Þannig getur Ísland áfram verið leiðandi á sviði endurnýjanlegrar hreinnar orku. Þess vegna styðjum við uppbyggingu orkufreks iðnaðar sem lýtur ströngustu skilyrðum.
Við Miðflokksmenn leggjum áherslu á stefnu til framtíðar sem byggir á raunsæjum skrefum, m.a. varðandi uppbyggingu innviða, orkuverð og aðgang að umhverfisvænum orkugjöfum. Þá er stuðningur við vísindi og rannsóknir á sviði umhverfisvænnar tækni vænlegasta leiðin til að ná raunverulegum árangri í loftslagsmálum og öðrum umhverfismálum.
Mikilvægt er að auka endurvinnslu á Íslandi í stað þess að flytja út pappír, ál, plast og annað sorp til brennslu eða annarrar úrvinnslu erlendis. Mikilvægast af öllu er þó að hefja mikið átak í landgræðslu og skógrækt á Íslandi og setja í málaflokkinn það fjármagn sem til þarf. Um leið þarf þessi málaflokkur að fara undir landbúnaðarráðuneytið svo skynsamleg framkvæmd sé tryggð.
Sigurður Páll Jónsson, þingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi
Greinin birtist í Fréttablaðinu þann 6. ágúst, 2021