Veiðar á flugfýl bannaðar?

Gömul hefð

Áður fyrr tíðkaðist það á hverju heimili á stórum svæðum, sérstaklega undir Eyjafjöllum, að veiða fýlsunga til vetrarins.  Víða er þessum sið enn viðhaldið, hefðanna vegna og til að veiðiverkunar- og matreiðsluaðferðir að þessu leyti falli ekki í gleymskunnar dá.  Nýlega mælti umhverfisráðherra fyrir frumvarpi um vernd, velferð og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.  Í lögunum er að finna nokkur nýmæli, en það sem vakti athygli mína við fyrstu sýn var að ef frumvarpið verður óbreytt að lögum munu svæðis- og hefðbundnar veiðar á fýlsungum alfarið leggjast af.

Heyra þessar veiðar sögunni til?

Í tíundu grein frumvarpsins er lagt bann við veiðum á ófleygum ungum.  Það hefur tíðkast á svæðum undir Eyjafjöllum alla tíð að veiða fýlsunga.  Þó þessi siður, sem var algengur á þessum slóðum og reyndar víðar, sé nú stundaður í miklu minna mæli, þá heldur fólk í gamlar hefðir bæði við veiðar og matseld að þessu leyti.  Það væri því mikil eftirsjá í því að leggja fortakslaust bann við þessum sið.  Veiðar í svo smáum stíl ættum við að halda í og leyfa.  Flugfýllinn lendur oft í sjálfheldu og á þá fyrir höndum hungurdauða eða verða æti fyrir varg.

Viðtækar heimildir til ráðherra og stofnana hans

Í frumvarpinu er að finna víðtækar heimildir til handa ráðherra til friðunar með setningu reglugerða, svo sem friðun fuglabjarga.  Þá er að finna í frumvarpinu ákvæði um veiðivörslu Umhverfisstofnunar sem tekur yfir allt landið.  Veiðivarslan mun fylgja ákveðinni eftirlitsáætlun sem verði undanþegin upplýsingalögum.  Í þinginu hef ég varað við sífellt auknu framsali löggjafans á valdi til ráðherra og auknum heimildum stofnana til einhvers konar lögreglu- og sektarvalds og hér er skýrt dæmi um slíkt.

Umsagnarferli

Nú er þetta frumvarp í umsagnarferli og er öllum frjálst að senda inn athugasemdir við það sem og önnur sem eru til meðferðar í þinginu og nefndum þess.

 

Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi

Greinin birtist þann 10. febrúar, 2021 í Dagskránni - Fréttablaði Suðurlands