Miðflokkurinn hefur frá upphafi kreppunnar lagt áherslu á að koma þyrfti strax með stórar, almennar og dýrar lausnir því það að gera lítið í einu á löngum tíma yrði á endanum enn dýrara. Í mars kynnti flokkurinn fyrst sínar lausnir eftir að stjórnvöld höfðu dregið lappirnar með að kynna alvöruaðgerðir. Síðan þá hefur vandinn aukist og pakkar ríkisstjórnarinnar eru enn ekki nógu stórir og afgerandi.
Miðflokkurinn kynnti í gærmorgun fleiri tillögur sem eru stórar og virka strax.
Almennar lausnir fyrir heimili:
Markmið: Verja lífskjör allra og auka ráðstöfunartekjur
Lækka staðgreiðslu skatta, tekjuskatt og útsvar í 24% til loka árs 2021
Aðgerð sem nær til launþega, eldri borgara og öryrkja, frá og með 1. júní nk. til 31.desember 2021. Lækkunin eykur ráðstöfunartekjur sem skilar sér í aukinni einkaneyslu og styður við innlend fyrirtæki.
Greiðslur vaxta og verðbóta vegna fasteignalána atvinnulausra falla niður í allt að 18 mánuði og höfuðstóll verður frystur
Aðgerðin nær til allra sem eru á atvinnuleysisskrá, frá og með 1. júní nk. til 31. desember 2021. Ríkið semur við lánastofnanir sem skipta með sér til helminga vaxtakostnaði vegna aðgerðanna. Lánstími lengist til jafns við lengd frystingar.
Almennar lausnir fyrir ferðaþjónustuna:
Markmið: Að gera ferðaþjónustufyrirtækjum kleift að leggjast í dvala til að geta risið upp aftur
Öll innlend lán ferðaþjónustunnar verða fryst til loka árs 2021
Aðgerðin nær til allra ferðaþjónustufyrirtækja sem hafa orðið fyrir verulegu tekjufalli vegna heimsfaraldursins. Lán verða fryst frá og með 1. júní nk. til 31. desember 2021. Ríkið semur við lánastofnanir um að vaxtakostnaði vegna aðgerðanna verði skipt til helminga á milli ríkissjóðs og banka.
Greiðslur fasteignagjalda verða frystar í 24 mánuði vaxtalaust
Sveitarfélög frysta allar greiðslur fasteignagjalda af öllu húsnæði ferðaþjónustufyrirtækja til 24 mánaða, vaxtalaust. Endurgreiðsla með 48 jöfnum afborgunum, sú fyrsta eftir 30 mánuði.
Fyrirtækjum og starfsfólki verði gert kleift að viðhalda ráðningarsambandi án launagreiðslu í allt að 12 mánuði
Úrræðið nær til allra ferðaþjónustufyrirtækja og starfsfólks þeirra, sem hafa orðið fyrir verulegu tekjufalli vegna áhrifa heimsfaraldursins. Lausn verður framkvæmd með útvíkkun laga nr. 19/1979, þar sem atvinnurekandi getur við vissar aðstæður tekið starfsmann af launaskrá en ráðningarsamningurinn heldur gildi sínu.
Fyrir öll fyrirtæki:
Tryggingagjaldið verður fellt niður til loka árs 2020
Frá og með 1. júní nk. til 31. desember 2020.
Ríkisstjórnin kýs að taka lítil skref og leggja til flóknar lausnir s.s brúarlánin sem enn eru ekki tilbúin.
Það þarf að hugsa stórt og djarft og þannig eru tillögur Miðflokksins.