Viðspyrna fyrir Ísland - karamelluflug ríkisstjórnar

Bæjarráð Svf. Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 19. mars sl. ályktun um örvun hagkerfis með þátttöku sveitarfélaga, til að lágmarka efnahagslegt tjón af völdum COVID-19 heimsfaraldurins. Í ályktuninni eru Alþingi og ríkisstjórn Íslands hvött til að leita allra leiða í þeirri viðleitni að lágmarka efnahagslegt tjón af völdum COVID-19. Í ályktunni segir meðal annars:

„Kólnun hagkerfisins með vaxandi atvinnuleysi er ógn við tekjustofna sveitarfélaga. Þegar í ofanálag eru horfur á verulegu hökti hagkerfisins, í kjölfar þess heimsfaraldurs sem nú ríður yfir landið, verður að grípa til róttækra aðgerða til að verja störf. Djúpfrysting hagkerfis, með tilheyrandi tekjutapi fyrir landsmenn, sveitarfélög og ríki, er ástand sem enginn vill upplifa aftur. Gríðarleg uppsöfnun á fjárfestingaþörf hins opinbera og góð staða ríkissjóðs fela nú í sér tækifæri til sóknar. Með mannaflsfrekum framkvæmdum við viðhald og nýfjárfestingar fengi atvinnulífið þá innspýtingu sem nú bráðvantar og þannig mætti verja störfin. Varanleg niðurfelling virðisaukaskatts af fráveituframkvæmdum og tímabundin niðurfelling virðisaukaskatts af öðrum nýframkvæmdum sveitarfélaga myndu gefa sveitarfélögum aukið svigrúm til þátttöku í slíkum aðgerðum,“

Nokkrum dögum áður hafði Svf. Árborg tekið saman lista, að beiðni ríkisstjórnarinnar, yfir opinberar framkvæmdir sem mögulegt væri að flýta á Árborgarsvæðinu og leggja til flýtiframkvæmdaátaks. Á listanum voru nálægt tuttugu framkvæmdir fyrir um 30 milljarða króna sem allar eru komnar áleiðis í undirbúningi, hönnun eða í framkvæmd að hluta eða öllu leyti.

Karamelluflug ríkisstjórnar

Rétt eins og líklega fleiri bæjarfulltrúar beið ég spenntur eftir blaðamannafundi oddvita ríkisstjórnarinnar sl. laugardag þar sem kynna átti markvissar aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum COVID-19. Kynnt var aðgerðaráætlun í 10 liðum.

„Vonbrigði“ er það orð sem best lýsir upplifuninni af boðuðum aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Í aðgerðaráætluninni er ekki að sjá að ríkið óski eftir þátttöku og samstarfi við sveitarfélögin í landinu til að lágmarka það efnahagslega tjón sem óhjákvæmilega verður af völdum heimsfaraldurins og að því marki að verja störfin.

Undir liðnum fjárfestingaátak kemur ekkert nýtt fram sem ekki hefur verið boðað áður. Engin merki sjást um að virðisaukaskattur verði felldur varanlega niður af fráveituframkvæmdum né að virðisaukaskattur af nýframkvæmdum sveitarfélaga verði felldur niður tímabundið, tvær einfaldar aðgerðir sem myndu gefa sveitarfélögum landsins aukið svigrúm til þátttöku í viðspyrnunni og koma má í framkvæmd með einu pennastriki af hendi fjármálaráðherra.

Það má helst ráða af þessari aðgerðaráætlun að ríkisstjórnin sé á engan hátt áfjáð í samstarf við sveitarfélögin í landinu um að örva efnahagskerfið til að lágmarka efnahagslegt tjón sem og verja störfin. Þess í stað má sjá aðgerðir sem minna einna helst á karamelluflug á þjóðhátíðardaginn, svo sem rafræn gjafabréf til þjóðarinnar - ígildi heimsendingartilboðs frá Pizzastað.

Því miður er „Stærsta efnahagslega aðgerð sögunnar“ mikil vonbrigði fyrir sveitarfélögin í landinu og eftir situr spurninginn: „Af hverju lá ríkisstjórninni svona mikið á að fá lista yfir mögulegar flýtiframkvæmdir frá sveitarfélögunum þegar engin merki sjást um að tekið hafi verið tillit til hugmynda þeirra í viðspyrnunni fyrir Ísland?

 

Höfundur:  Tómas Ellert Tómasson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Svf. Árborg

Greinin birtist á visir.is þann 24. mars, 2020