01.09.2021
Kynntu þér kosningastefnu Miðflokksins 2021
01.09.2021
Erna Bjarnadóttir hagfræðingur er gestur Miðvarpsins að þessu sinni, en hún skipar annað sæti á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi.
Hún segir að sér sé annt um að Íslendingar haldi góðum samskiptum við Evrópusambandið en fráleitt sé að ganga þangað inn. Hún segist undrast viljaleysi ESB-flokkanna við að setja málið á dagskrá þó hún segist auðvitað fagna því. Fullveldismálin séu hins vegar alltaf til umræðu og ljóst sé að þar sé Miðflokkurinn í fylkingarbrjósti.