Bókun um skýrslu vegna kísilversins

Á dögunum var skýrsla um úttekt á stjórnsýsluháttum Reykjanesbæjar vegna málefna United Silicon kynnt og rædd í bæjarstjórn Reykjanesbæjar.

Í viðtali við Local Suðurnes segir Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfulltrúi Miðflokksins, að samkvæmt skýrslunni sé ljóst að afdrifarík mistök hafi verið gerð af hálfu starfsfólks og stofnanna Reykjanesbæjar bæði við afgreiðslu umsókna og við eftirlit með framkvæmdum fyrirtækisins.  Einnig segir Margrét að byggingareglugerðir og mannvirkjalög hafi verið brotin þegar samningur milli fyrirtækisins og Reykjanesbæjar var gerður um að umsóknir United Silicon um byggingarleyfi yrðu afgreiddar á innan við viku.

Hér má sjá bókun Margrétar um málið:

“Eins og fram kemur í skýrslunni hafði Reykjanesbær skuldbundið sig með sérstökum samningi við United Silicon að afgreiða umsóknir um byggingarleyfi innan 6 virka daga. Slíkur samningur er ólögmætur og á sér ekki hliðstæðu í stjórnsýslunni. Skýrsluhöfundar leggja ríka áherslu á þetta. Með því voru mannvirkjalög og byggingagerðarreglugerð brotin. Hafa ber í huga að þessi ólögmæti samningur skrifast fyrst og fremsta á meirihluta bæjarstjórnar á þeim tíma.

Embættismenn á vegum sveitarfélagsins koma ekki að slíkri samningagerð, ef svo ólíklega vildi til, væri það aldrei gert nema að fyrirmælum meirihluta bæjarstjórnar.

Skýrsluhöfundar benda réttilega á að sá stutti tími sem afgreiða þurfti umsóknir United Silicon hafi aukið líkur á því að mistök yrðu gerð í afgreiðslu umsókna og að eftirlit yrði af skornum skammti. Það kom síðan á daginn að mörg afdrifarík mistök áttu sér stað af hálfu starfsmanna og stofnana Reykjanesbæjar.

Niðurstaða skýrslunnar er sláandi og áfellisdómur yfir stjórnsýslu bæjarins. Afleiðingarnar voru afdrifaríkar og öllum bæjarbúum kunnar. Ábyrgðin er fyrst og fremst pólitísk, það má glöggt sjá í áðurnefndum ólögmætum 6 daga samningi. Brottrekstur þáverandi byggingafulltrúa var fyrst og fremst táknrænn. Ábyrgðin er hjá þáverandi meirihluta sem sá um daglegan rekstur bæjarfélagsins og var æðsti yfirmaður starfsliðs.“