Bruðl, bákn og borgarlína
Í umræðu á Alþingi um samgönguáætlun og samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sl. vor dró Miðflokkurinn fram marga ágalla við undirbúning svokallaðrar borgarlínu.
Miðflokkurinn krafðist ábyrgðar og festu í fjármálum af hálfu ríkis og sveitarfélaga við þessa framkvæmd. Samfylkingarflokkarnir kölluðu málflutning okkar málþóf, enda óþægilegt að vera tekinn í bólinu með draumaverkefni sitt og fá ekki næði til að sólunda almannafé í lítt ígrunduð gæluverkefni.
Borgarlína er í raun gamaldags fyrirbrigði sem heyrir liðinni tíð og er ekki lausn sem hentar í samgöngum nútímans. Sjálfvirk ljósastýring, rafbílavæðing og sjálfkeyrandi bifreiðar eru handan við hornið með minni mengun, minni hávaða og greiðari umferð.
Í sáttmálanum eru einnig ákvæði um að ráðast í ýmsar aðrar nauðsynlegar framkvæmdir í samgöngumálum höfuðborgarsvæðisins, svo sem úrbætur á helstu samgönguæðum þess.
Allir sem fara um gatnakerfi höfuðborgarinnar finna fyrir því hve illa gengur að komast leiðar sinnar. Til þess að fá þessar framkvæmdir inn í sáttmálann sættist stjórnarmeirihlutinn á Alþingi á að samþykkja borgarlínuverkefnið, án þess að fyrir lægi hversu mikið það mun kosta eða yfirleitt hvernig ætti að reka það. Slík vinnubrögð eru óábyrg og óverjandi.
Blekið var varla þornað á frumvarpinu þegar meirihlutinn í borginni var farinn að slá í og úr með að standa við sinn hluta sáttmálans, enda kunnur að því að standa áratugum saman gegn Sundabraut og flugvellinum í Vatnsmýri.
Þá munu þeir fyrirvarar og skilyrði sem sett voru inn í málið af hálfu Miðflokksins á Alþingi reynast notadrjúg, auk þess sem Alþingi mun þurfa að samþykkja samgönguáætlun og ráðstöfun fjár til samgönguverkefna.
Sundabraut er verkefni sem borgarstjórnarmeirihlutinn hefur æ ofan í æ sett fótinn fyrir, þrátt fyrir að sú samgöngubót hafi verið til athugunar áratugum saman og bæti bæði leiðir að borginni fyrir íbúa vestan og norðan hennar, stórauki öryggi sem flóttaleið út úr borginni og hafi í för með sér að opnað er fyrir mörg hagkvæm ný byggingarsvæði.
Í efnahagsþrengingunum fram undan er mikilvægt að gætt sé aðhalds í útgjöldum hins opinbera. Að ráðast í eina stærstu framkvæmd hérlendis um árabil, byggt á lítt útfærðum framkvæmdaáætlunum og án rekstraráætlunar, er verulega óábyrgt.
Umræðurnar um samgönguáætlun á Alþingi í sumar staðfesta að Miðflokkurinn einn flokka hafði þrek til að standa gegn óráðsíu vinstriflokkanna í samgöngumálum höfuðborgarsvæðisins.
Höfundur: Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins og situr í umhverfis- og samgöngunefnd.
Pistillinn birtist í Morgunblaðinu þann 9. september, 2020