Fimmtán Sjónvarpslausir fimmtudagar

Nú hefur þingflokkur Miðflokksins haldið úti hlaðvarpsþættinum Sjónvarpslausir fimmtudagarítæpa fjóra mánuði og fór fimmtándi þátturinn í loftið nú rétt eftir áramót. Nafn þáttanna skírskotar annars vegar til nostalgíu þess tíma þegar heimilishaldið var laust við sjónvarpshávaðann einn dag í viku og um leið var ætlað að minna á að þátturinn væri tekinn upp í lok þingvikunnar, sem er oftast á fimmtudögum.

Við í þingflokknum höfum gaman af því að greina helstu málefnin í þessum hlaðvarpsþáttum og verður þetta eins konar dagbók líðandi stundar fyrir okkur sjálfa og þá sem hlusta þegar kemur að því hvað ber hæst í stjórnmálunum í hverri viku.

Það sem hefur þó komið mest á óvart og um leið gert þáttagerðina enn ánægjulegri eru viðbrögðin. Fólk sem á hlustar er ánægt með að talað sé á opinskáan hátt um það sem er í deiglunni hverju sinni. Oft aðeins frjálslegar en forsendur eru til í pontu Alþingis.

SLF-verðlaun ársins

Við vildum gera liðið ár upp með skemmtilegum hætti og gerðum því sérstaka áramótaútgáfu þar sem fram fór ársuppgjör Sjónvarpslausra fimmtudaga – SLF-verðlaunin. Verðlaun voru veitt í 75 flokkum hvorki meira né minna. Sum þeirra gegnsýrð af léttu gríni og kaldhæðni (sem þarf að verða meira af á nýju ári) en önnur voru án alls slíks. Öllum liðum fylgir rökstuðningur og létt umræða.

Sem dæmi voru veitt verðlaun fyrir sölumann ársins. Þau fóru lóðbeint til forstjóra bankasýslunnar sem seldi ekki bara Íslandsbanka eins og þekkt er orðið heldur líka bankasöluna til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Svo var innviðaráðherra krýndur gjaldheimtumaður ársins af augljósum ástæðum og umhverfisráðherra titlaður vísindamaður ársins enda ætlar hann að banna rannsóknir í íslenskri efnahagslögsögu. „Villi ársins“ var svo auðvitað Vilhjálmur Birgisson verkalýðsleiðtogi, sem braut ísinn hvað samninga varðar á liðnu ári. Gjaldþrot ársins féll svo skuldlaust í skaut Reykjavíkurborgar.

Umræddur þáttur og allir hinir eru aðgengilegir á helstu hlaðvarpsveitum svo sem Spotify og Podbean en líka á heimasíðu Miðflokksins. Einnig má lesa sig í gegnum verðlaunaafhendinguna á vef Miðflokksins, www.midflokkurinn.is.

Við hlökkum til nýs árs, nýs þingveturs, fleiri sjónvarpslausra fimmtudaga og erum bara rétt að byrja.

Gleðilegt nýtt ár – það hefur alla burði til að verða gott, ef vel er haldið á spilunum. Munum svo að það munar um Miðflokkinn.

Bergþór Ólason, alþingismaður.

Pistillinn birtist í morgunblaðinu 6. janúar, 2023.