Freka konan og borgarlínan
Þriðjudagur, 14. júlí 2020
Formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur, píratinn Sigurborg Ósk Haraldsdóttir skrifaði grein í Morgunblaðið í gær. Þar lýsti hún því að tími freka karlsins væri liðinn. Þar vísaði formaðurinn til þess að tími framkvæmda á stofnbrautakerfi höfuðborgarsvæðisins sem ætlaðar væru til að liðka fyrir umferð fjölskyldubílsins hefði nú runnið sitt skeið á enda. Það er víst stefna freka karlsins að vilja liðka fyrir umferð!?
Formaður skipulags- og samgönguráðs má eiga það að hún hefur viðurkennt og að því er virðist beinlínis hreykt sér af því að ætla að þvinga íbúa höfuðborgarsvæðisins í borgarlínuna. Það verði meðal annars gert með því að tryggja „færri bílaakreinar og færri bílastæði“. Svo virðist sem freka konan sé hálfu verri en freki karlinn. Vilji og val borgarbúa virðist ekki skipta borgarfulltrúann nokkru máli. Samfélagsverkfræðin er allsráðandi og trúin á borgarlínuna virðist trompa öll rök og raunar alla tengingu við raunveruleikann.
Það er ólíklegt að viðlíka frekja og yfirgangur hafi viðgengist á fyrri stigum hvað skipulagsmál höfuðborgarinnar varðar. Öll meðul virðast leyfileg þegar kemur að því að þrengja að fjölskyldubílnum, sem mikill meirihluti borgarbúa hefur þó valið sér sem meginferðamáta.
Lítil virðing formanns skipulags- og samgönguráðs (og forvera hennar) fyrir sjónarmiðum hins almenna borgarbúa endurspeglast í fjölmörgum málum. Grensásvegurinn var þrengdur, Hofsvallagatan var þrengd, strætóstoppistöð komið fyrir á miðri Geirsgötu, Hagatorg er ekki lengur hringtorg, battavöllur fellur af himnum ofan og svona mætti áfram telja. Framgangan gagnvart flugvellinum í Vatnsmýrinni er síðan kapítuli út af fyrir sig.
Það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Þegar fyrrverandi borgarstjóri henti 70.663 undirskriftum til stuðnings flugvallarstarfsemi í Vatnsmýri í ruslið, með þeim orðum að hann hefði nú reiknað með þeim fleiri, varð breyting á hvernig borgaryfirvöld taka tillit til sjónarmiða borgarbúa. Endalausar fréttir undanfarin ár, þar sem íbúar kvarta yfir því að ekkert mark sé tekið á umkvörtunum þeirra eða ábendingum, segja sína sögu.
Núverandi meirihluti Samfylkingarinnar í Reykjavík, með öllum sínum varadekkjum, virðist ætla að setja undir sig hausinn og þvinga íbúa höfuðborgarinnar inn í svokallaða borgarlínu. Allt gerist þetta nú í boði Viðreisnar, sem tók að sér að vera nýjasta varadekkið undir vagni borgarstjóra. Lítil veikluleg varadekk sem ætluð eru til þess eins að koma bifreið á næsta dekkjaverkstæði ganga undir ákveðnu nafni. Það kemur á óvart að flokkur Benedikts Jóhannessonar taki að sér að vera í því hlutverki. bergthorola@althingi.is
Höfundur er þingmaður Miðflokksins í NV-kjördæmi.
Greinin birtist í Morgunblaðinu 14.7.2020