Hvar eiga börnin okkar að búa?

Árin 2005-2007 ríkti þórðargleði hjá fólki sem var að kaupa íbúðarhúsnæði sem hækkaði í verði nánast mánaðarlega. Dæmi voru um að íbúð tvöfaldaðist í verði á stuttum tíma. Ástæðurnar voru fyrst og fremst þær að fólki stóð til boða lán sem báru á þeim tíma lága vexti, reyndar í erlendum gjaldmiðli, varð því greiðslubyrðin lág og meira svigrúm skapaðist til að fjárfesta í íbúðarhúsnæði.

Verð húsnæðis, í fullkomnum heimi þar sem framboð helst í hendur við eftirspurn, ætti að myndast af lóðarverði, byggingarkostnaði og öðrum þáttum eins og staðsetningu. Ýmsir svokallaðir sérfræðingar hafa reynt að koma með aðrar skýringar. Flestir eiga þeir þó það sameiginlegt að vera málpípur þeirra sem hafa hagsmuni af háu fasteignaverði.

Hálfsannar skýringar

Þær húsnæðisframkvæmdir sem nú eru í gangi á höfuðborgarsvæðinu eru flestar á vegum verktaka, sumir þeirra flokkast sem risaverktakar. Ýmist er hent fram rökum um að þörf sé fyrir litlar íbúðir, það þurfi að þétta byggð og að markaðurinn kalli á hinar eða þessar gerðir eigna.

Margt af þessu má rökstyðja. Enginn hefur mælt gegn þéttingu byggðar þar sem það á við. Það er hins vegar nauðsynlegt að ætíð sé nægt lóðaframboð á eðlilegum kjörum. Einstaklingar verða að hafa val um hvernig húsnæði þeir vilja búa í.

Öll umræða um að aldrei hafi verið byggt jafn mikið og undanfarið er „mantra“ sem telur almenningi þá trú að innan skamms verði ofgnótt húsnæðis.

Af hverju er fasteignaverð eins hátt og raun ber?

Einfalda svarið er að þeir sem eru í viðskiptum vilja græða sem mest. Hverjir aðrir eru að hagnast ? Getur verið að bankakerfið sjái sér hag í að halda verði háu svo að hægt sé að lána meira? Tekjur sveitarfélaganna af lóðarsölu eru miklar sem bætist við verð fasteigna og um leið hækka fasteignaskattar.

Stóra óleysta vandamálið

Stóra óleysta vandamálið er hvernig fólk eigi að eignast eða leigja fasteign án þess að greiða þurfi okurverð. Skynsamlegasta leiðin er að tryggja framboð lóða á eðlilegu verði.

Það er engum greiði gerður að okurverð og yfirboð viðgangist á fasteignamarkaði. Með því móti geta börnin okkar og barnabörn hvorki keypt né leigt. Tryggja þarf að allir geti keypt íbúðarhúsnæði og þeir komist af leigumarkaði sem vilja.

 

Fjóla Hrund Björnsdóttir, oddviti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Greinin birtist á Vísi þann 19. ágúst, 2021