Hvenær verður ný Ölfusárbrú vígð?

Það er öllum ljóst að gríðarlegt umferðarálag er við núverandi Ölfusárbrú við Selfoss og þar myndast oft langar biðraðir sem ná jafnvel upp á Kambabrún er verst lætur. Hér verður stiklað á stóru um sjálfa framkvæmdina, vegtollarnir eru svo sér kapituli út af fyrir sig.

Árið er 2015

Morgunblaðið 12. janúar 2015.

„Hjá Vega­gerðinni er vinna kom­in vel af stað við hönn­un og und­ir­bún­ing fyr­ir útboð á nýrri brú yfir Ölfusá, norðan við Sel­foss.
Er bú­ist við að útboð geti farið fram í lok árs 2016 og fram­kvæmd­ir geti haf­ist árið 2017. Sam­kvæmt sam­göngu­áætlun Alþing­is er gert ráð fyr­ir brúnni á tíma­bil­inu 2017-2019.“

Árið er 2021

Visir.is,8. júní 2021.

“Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra lofar nýrri brú yfir Ölfusá við Selfoss í lok ársins 2023 eða árið 2024 en framkvæmdir við brúna verða boðnar út um næstu áramót. Brúin mun kosta um sex og hálfan milljarða króna og innheimtur verður vegatollur yfir hana.“

Staða framkvæmda á nýrri Ölfusárbrú

Staða framkvæmda er nánast sú sama og hún var árið 2015. Forhönnun brúarinnar er lokið. Eftir er að klára frumhönnun og fullnaðarhönnun, ásamt ítarlegri deilihönnun. Það á einnig eftir að klára forhönnun og fullnaðarhönnun þjóðvegar nr. 1 að og frá brúnni. Það á eftir að fastsetja hvar hringtorg kemur austan við brúnna, hvar endanlega á að staðsetja undirgöng fyrir gangandi og ríðandi og hversu mörg þau verða. Það sem verra er, er að það á eftir að klára samninga við landeigendur á veghelgunarsvæði þjóðvegarins, að og frá brúnni.

Hvenær er raunhæft að vígja nýja Ölfusárbrú?

Það er ekki raunhæft að bjóða út framkvæmdina um áramótin. Það er í fyrsta lagi raunhæft að bjóða út framkvæmdina næsta vor.

Ef farin verður sú leið að bjóða út brúnna og vegina að og frá brúnni í svokallaðri PPP framkvæmd mun taka nokkurn tíma að yfirfara og klára samninga við viðkomandi verktaka sem vinna á verkið, ekki skemmri tíma en 3 til 6 mánuði.

Hönnunin sem síðan á eftir að vinna, mun taka her verkfræðinga um ár að klára. Þannig að framkvæmdirnar munu aldrei geta hafist fyrr en í byrjun árs 2024. Framkvæmdin sjálf mun svo taka tvö til þrjú ár í framkvæmd. Það er því ekki raunhæft að vígja brúnna fyrr en í fyrsta lagi árið 2026 og jafnvel ekki fyrren árið 2027 með sama áframhaldi.

Kæru Sunnlendingar og íbúar á Stór Árborgarsvæðinu, látið ekki blekkja ykkur til fylgilags við þá flokka sem halda öðru fram. Verum raunsæ, ástandið við brúarsporðinn á Selfossi mun bara versna á næstu árum, ekki batna. Brúin verður ekki vígð fyrren í fyrsta lagi árið 2026, á þar næsta kjörtímabili.

          

Ofangreinda frétt á Vísi má sjá hér.

 

Tómas Ellert Tómasson, verkfræðingur og bæjarfulltrúi Miðflokksins í Svf. Árborg.  Tómas Ellert skipar 2. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík Norður

Birgir Þórarinsson, alþingismaður og oddviti Miðflokksins í Suðurkjördæmi