Inngangur
Miðflokkurinn býður fram lista einstaklinga með breiða reynslu og góða kunnáttu fyrir sveitarstjórnarkosningar sameinaðs sveitarfélags á Austurlandi þann 19. september 2020.
Má þar nefna:
- Reynslu af sveitarstjórnarmálum.
- Reynslu af rekstri og stofnun fyrirtækja.
- Reynslu á fjármálasviði.
- Reynslu af sjávarútvegi.
- Reynslu af frumkvöðlastarfsemi.
- Kunnáttu á sviði raforkumála.
- Reynslu í erlendum samskiptum og markaðssókn.
- Fjölbreytt reynsla úr þáttum atvinnulífs í sveitarfélaginu.
- Reynslu af verkefnastjórnun og áætlanagerð.
- Reynslu á íþrótta- og tómstundasviði.
Stefna Miðflokksins boðar að reynsla og kunnátta frambjóðenda sé nýtt til að móta hið nýja sveitarfélag til langrar framtíðar í þágu allra íbúa sveitarfélagsins. Saman þróum við það
sveitarfélag sem við viljum búa í.
Tvö meginmál í stefnu Miðflokksins sem grundvalla velferð eru fjármál og skipulagsmál:
- Fjármál sem miða að því að auka tekjur með nýsköpun að leiðarljósi eru forsenda fyrir blómstrandi samfélagi fyrir alla íbúa sveitarfélagsins.
- Skipulagsmál sem endurspegla sameiginlega framtíðarsýn til lengri tíma varðandi uppbyggingu mannvirkja, samgangna og umhverfismála eru forsenda fyrir tilvist og vellíðan í hverju blómstrandi samfélagi sveitarfélagsins.
Lesið stefnuskránna í heild sinni:
Stefnuskrá sameinaðs sveitarfélags Borgarfjarðar eystri, Djúpavogs, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðar