Kerfisþolinn

Til Miðflokksins leita reglulega einstaklingar sem hafa eða telja sig hafa orðið fyrir ósanngjarnri meðhöndlun af kerfinu. Frá því að flokkurinn birti auglýsingu þess efnis hafa streymt hundruð slíkra frásagna og eru þær enn að berast.

Hér eftir fer ein slík:

Ríkisstjórnin auglýsti nýlega verkefnið „allir vinna“. Verkefnið gengur út á að einstaklingar fá fulla endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu við endurbætur á húsnæði og viðgerðir á fólksbifreiðum.

Maður fór í góðri trú og lét gera við bílinn sinn en virðisaukaskatturinn af vinnuliðnum var heilar 27 þúsund krónur. Þessi maður býr við þær aðstæður að hann þarf að notast við fjórhjóladrifsbíl stóran hluta ársins. Bifreiðin er í þessu tilfelli Toyota Hilux „double cab“ Þegar maðurinn sótti um endurgreiðslu var honum tjáð að reglurnar giltu ekki um sendiferðabíla! Ekki vildi hann una þeirri niðurstöðu heldur leitaði sér frekari upplýsinga. Skilningur skattsins var sá að væri farþegarýmið lengra en farangursrýmið væri sannarlega um fólksbifreið að ræða. Farangursrýmið var 160 cm að lengd, þ.e. pallur bílsins sem er yfirbyggður, en farþegarýmið röskir tveir metrar. Túlkun samgöngustofu var önnur og eru bílar með palli skilgreindir sem sendiferðabílar. „REGLUGERÐ NR. 822/2004 UM GERÐ OG BÚNAÐ ÖKUTÆKJA“ Hefði viðkomandi maður á sínum tíma keypt Landcruiser í stað Hilux hefði hann fengið virðisaukaskattinn endurgreiddan.

Upphæðin sem slík er ekki stóra málið í þessu tilfelli heldur óskýrar reglur sem leiddu til mikillar skriffinnsku, fyrirspurna og athuganna innan kerfisins. Kostnaðurinn við það er að öllum líkindum miklu meiri en þær 27 þúsundir sem manninum var neitað um.

Er ekki eitthvað að?

Fjöldinn allur af svipuðum málum hefur Miðflokkurinn fengið inn á sitt borð. Þau eiga það flest sameiginlegt að flókið regluverk gerir einstaklingum og litlum fyrirtækjum erfitt fyrir. Kostnaður kerfisins getur verið mikill, hann greiða skattborgarar hvort sem þeim líkar betur eða verr, en kostnaður einstaklinganna getur verið óyfirstíganlegur.

 

Höfundur: Jón Pétursson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins.

Greinin birtist fyrst á Vísi þann 28. október, 2020