Krónan er akkeri hag­kerfisins!

Í undangenginni kosningabaráttu hefur sérstaklega einn stjórnmálaflokkur, Viðreisn, gert að kosningamáli að leggja af sjálfstæðan gjaldmiðil, krónuna okkar, og tengja hana við Evru með einhverjum kúnstum sem meðal annars myndu kalla á að Evrópski Seðlabankinn myndi þurfa að sniðganga eigin reglur. Afleiðingar af slíkri vegferð yrðu meðal annars hækkandi vextir og í versta falli einnig aukið atvinnuleysi. Þessar auglýsingar um tengingu krónunnar við Evru eru því markleysa enda byggja þær á misskilningi um vald peningastefnunnar og samspil launa og verðlags í hagkerfinu og áhrif útflutningsgreinanna þar á. Auglýsingar Viðreisnar hljóta að vera ætlaðar annari þjóð en Íslendingum en óvarlegt væri að sýna þær í Grikklandi, þar vita þeir vita betur þegar kemur að evrunni. Þetta vitum við sem höfum fylgst grannt með undanfarin ár t.d. á vettvangi Heimssýnar þar sem ég sat í stjórn í mörg ár og var um skeið formaður.

Ásgeir Jónsson frændi minn og seðlabankastjóri hefur nú tekið að sér að leiðrétta þessa vitleysu. Hann segir að hugmyndir um að festa íslensku krónuna við evruna, líkt og Viðreisn er með á stefnuskrá sinni fyrir kosningarnar, séu „að einhverju leyti vanhugsaðar“ og kalli jafnvel á hærri stýrivexti. Þetta sagði Ásgeir á Reikningsskiladegi Félags löggiltra endurskoðenda (FLE) sem fór fram í lok síðustu viku og Viðskiptablaðið hefur rakið.

Seðlabankastjóri segir í rauninni ómögulegt fyrir Seðlabankann að halda fastgengi við evru enda þyrfti þá að heita öllum gjaldeyrisforðanum til að viðhalda fastgenginu. Til þess að þetta gæti orðið að veruleika þyrfti fullkomin sátt og samkomulag að ríkja við verkalýðsfélögin um að heimta ekki meiri launahækkanir en gerist í Evrópu. Einnig yrði ríkisstjórnin að byggja fjárlög út frá því að halda jafnvægi á genginu. Jafnvel þó þessir þættir næðust, sagði seðlabankastjóri, þá yrði enn óöruggt hvort fastgengisstefnan myndi ganga upp, meðal annars vegna hættunnar á að spákaupmenn ráðist á gengið.

Viðreisn leggur í sinni stefnuskrá til að Ísland geri tvíhliða samning við Evrópusambandið um samstarf í gjaldeyrismálum. Flokkurinn áætlar að ráðstöfunartekjur heimilanna aukist um 72 þúsund krónur á mánuði á komandi kjörtímabili með því að tengja krónuna við evru, vegna lægri vaxta, vöruverðs og þjónustukostnaðar sem fylgja þeirri gjaldeyrisstefnu. Um þetta sagði seðlabankastjóri á fundinum: „Það er alls ekki víst að við fengjum sömu vexti, við gætum fengið hærri vexti, við myndum þurfa að hækka vexti til þess að verja gengið,“ sagði Ásgeir. „Ég held að það sé að einhverju leyti vanhugsað að fara úr verðbólgumarkmiði sem við erum búin að vera með í 20 ár yfir í þetta [fyrirkomulag],“ sagði Ásgeir í frétt Viðskiptablaðsins. Þarf frekari vitnanna við.

Það er ljóst að mitt fyrsta verk sem þingmanns verður að kría út kaffibolla með frænda mínum og ræða málin. Betur færi að fleiri hlýddu á hanns varnaðarorð!

 

Erna Bjarnadóttir skipar 2. sæti á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi.

Greinin birtist á Vísi þann 24. september, 2021