Orkupakkinn á Íslandi og fréttir frá Belgíu

Síðan þriðji orkupakkinn var tekinn til umræðu á Alþingi hefur mikill tími farið í að ræða þann fyrirvara sem ríkisstjórnin segist ætla að setja á innleiðinguna. Með fyrirvaranum verða reglugerðir orkupakkans innleiddar en gildistöku hluta þeirra frestað, þ.e. þeirra sem gætu farið á svig við stjórnarskrána. Þótt það megi vissulega deila um hvort slíkur fyrirvari hafi eitthvert gildi þá má jafnframt benda á að innleiðingin er ekki eins og hún á að vera og því má búast við að Eftirlitsstofnun EFTA hafi eitthvað út á það að setja.

Í þessu samhengi er rétt að skoða nýlegar fréttir af þeirri málsókn sem á sér stað gegn stjórnvöldum í Belgíu. Ástæðan fyrir því að þessi málsókn er áhugaverð er sú að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins höfðar málið og hún gerir það sökum þess hvernig stjórnvöld þar í landi stóðu að innleiðingu þriðja orkupakkans. Framkvæmdastjórnin segir sem sagt að innleiðingin á tveimur af reglugerðum í orkupakkanum (2009/72/EB og 2009/73/EB) hafi ekki verið framkvæmd á réttan hátt.

Þrátt fyrir þessa miklu samsvörun milli þessara tveggja atburða, ófullnægjandi innleiðingu á þriðja orkupakkanum á Íslandi sem og í Belgíu, þá virðist ríkisstjórnin harla róleg. Það má segja að það veki furðu því nú hefur hver lögspekingurinn á fætur öðrum bent á hversu hættuleg braut þetta sé. Ekki einvörðungu í ljósi þess að einhliða fyrirvari af Íslands hálfu sé gagnslaus og því sé ekki hægt að koma í veg fyrir sæstreng eftir að þriðji orkupakkinn hefur verið innleiddur, heldur leikum við okkur einnig að eldinum varðandi innleiðinguna og getum átt von á samningsbrotamáli gegn Íslandi og að öllum líkindum skaðabótamáli.

Nú þætti mér fróðlegt að fá frekari upplýsingar um hvort ríkisstjórnin hafi látið leggja mat á hverjar skaðabæturnar yrðu ef svo illa vill til að sótt verði samningsbrotamál gegn landinu eftir þá hálfkáks innleiðingu sem nú er lagt upp með. Hefur það ef til vill ekki verið kannað? Það er ábyrgðarhluti að stjórna heilu landi og vissulega er mikilvægt að setja á sig bæði belti og axlabönd, sérstaklega þegar kemur að háum fjárhæðum sem Ríkissjóður Íslands gæti þurft að standa straum af. Því er ég hissa á þessu öllu saman.

Ég er hissa á því að ríkisstjórnin loki eyrunum gagnvart efasemda­röddum úr samfélaginu, löglærðum og sérfróðum, í stað þess að kanna málin ofan í kjölinn og tryggja að ekki sé lagt af stað í háskaför. Við verðum auðvitað að geta treyst stjórnvöldum landsins en miðað við það sem á undan er gengið þá er ekki laust við að efasemdirnar séu byrjaðar að naga mann því erfitt getur reynst að spá fyrir um hvað sé fram undan. Það versta er að ég er ekki viss um að ríkisstjórnin viti það heldur.

 

Sigurður Páll Jónsson

Greinin birtist í Fréttablaðinu 21. ágúst, 2018.