Sjónvarpslausir fimmtudagar - áramótaútgáfa

#15 - Sjónvarpslausir fimmtudagar 3.1.2023

SLF verðlaun ársins í 75 flokkum.

Sigmundur Davíð og Bergþór fara yfir árið 2022 og veita hin árlegu SLF verðlaun, sem mörg hver byggja á kaldhæðni í garð þess sem þau hlýtur.

Af handahófi:

  • Sölumaður ársins: Jón Gunnar Jónsson, forstjóri bankasýslunnar.
  • Handbók ársins: Handbók Reykjavíkur um vetrarþjónustu.
  • Vonbrigði ársins: Útgjaldavöxtur ríkissjóðs undir forystu Sjálfstæðisflokksins.
  • Vísindamaður ársins: Loftslagsráðherra fyrir áform um að banna rannsóknir í íslenskri efnahagslögsögu.
  • Vinnuveitandi ársins: Reykjavíkurborg fyrir að hugleiða að hætta að ráða ónauðsynlega starfsmenn, fækka leikskólakennurum og fjölga upplýsingafulltrúum.
  • Snjómokstursmaður ársins: Einar Þorsteinsson.

Og ótal fleiri verðlaun sem menn munu til langs tíma hafa innrömmuð uppi á vegg á skrifstofum sínum.

Takk fyrir samfylgdina á liðnu ári og gleðilegt nýtt ár!

hlustaðu á þáttinn hér

þátturinn á spotify