Við flytjum!

Miðflokkurinn flytur skrifstofu sína í nýtt og rúmgott húsnæði að Hamraborg 1 í Kópavogi

Í nýja húsnæðinu er góð aðstaða til að halda smærri og stærri fundi.  Næg bílastæði eru við húsið og gott aðgengi fyrir alla þar sem lyfta er í húsinu.  Skrifstofa Miðflokksins er á 3. hæð. 

Framkvæmdum fer nú að ljúka og við hlökkum til að taka á móti ykkur á nýja staðnum.

Það verða fastir liðir tvisvar í viku; hádegisspjall á þriðjudögum og vöfflukaffi á föstudögum.

 

Hádegisspjall:  Þriðjudagar kl. 11:30 - 13:30

Við ætlum að bjóða upp á hádegishitting og spjall alla þriðjudaga kl. 11:30 - 13:30 þar sem boðið verður upp á kaffi og með því. 

Fyrsta hádegisspjallið verður haldið þann 9. mars.

Vöfflukaffi:  Föstudagar kl. 15:00 - 17:30

Vinsæla vöfflukaffið okkar færist yfir á föstudaga og verður nú framvegis á föstudögum kl. 15:00 - 17:30.

Rjúkandi vöfflur, kaffi og gos á boðstólnum. 

Fyrsta vöfflukaffið verður haldið þann 12. mars.

Við hlökkum til að sjá ykkur og að sjálfsögðu eru allir innilega velkomnir!