Vilborg er nýr oddviti í Reyjavík norður

Ný þáttaröð hefur hafið göngu sína á Miðvarpinu þar sem Sigurður Már mun ræða við frambjóðendur Miðflokksins til komandi Alþingiskosninga.

Gestur Sigurðar Más í þessum fyrsta þætti er Vilborg Þóranna Bergmann Kristjánsdóttir, nýr oddviti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.

 1. þáttur:  Vilborg Þóranna Kristjánsdóttir

Vilborg Þóranna hefur mikla reynslu sem lögfræðingur og sáttamiðlari eftir öflugt starf við margvísleg félags- og góðgerðarmál. Vilborg segist ekki óttast áskoranir en hún hefur verið félagi í Miðflokknum frá stofnun eins og margir í hennar fjölskyldu.

Hún segist ávallt hafa verið pólitísk og látið sig samfélagsmál varða og þorir að ræða erfið mál.  Velferðarmál og málefni barna og unglinga eru henni sérstaklega hugleikin. „Við höfum skyldur gagnvart eldri borgurum,“ segir Vilborg í spjalli við Miðvarpið.

Leggið við hlustir, hér er komin nýr og áhugaverður leiðtogi í Miðflokknum.

Þáttastjórnandi Miðvarpsins er Sigurður Már Jónsson.