14.05.2021
Sigurður Páll Jónsson var gestur Sigurðar Más í þessum 8. þætti hlaðvarpsseríunnar Pólitík í vikulokin.
08.05.2021
Gestur þáttarins er Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi.
Áhugaverður þáttur þar sem rætt er um skipulagða glæpastarfsemi, skógrækt og margt fleira.
Stjórnandi þáttarins er Sigurður Már Jónsson.
30.04.2021
Gestur þáttarins er Anna Kolbrún Árnadóttir, alþingismaður Miðflokksins.
Þau ræða skimanir fyrir leghálskrabbameini, hjúkrunarheimilin og margt fleira.
Stjórnandi þáttarins er Sigurður Már Jónsson.
23.04.2021
Gestur þáttarins að þessu sinni er Ólafur Ísleifsson, þingmaður Miðflokksins. Ólafur ræðir m.a. um borgarlínuna, málefni eldri borgara, lífeyrissjóðskerfið og málefni hælisleitenda. Áhugaverður þáttur sem þú vilt ekki missa af. Stjórnandi þáttarins er Sigurður Már Jónsson.
17.04.2021
Gestur Sigurðar Más í þessum fjórða þætti er Þorstein Sæmundsson, þingmaður okkar í Reykjavíkurkjördæmi suður. Áhugaverður þáttur þar sem margt ber á góma; Atvinnumálin í Reykjavík, Sundabrautin, flutningur ungs fólks úr Reykjavík, málefni eldri borgara og farið yfir áherslur flokksins í þeim málaflokki.
09.04.2021
Í þessum þætti tekur Sigurður Már á móti Gunnari Braga Sveinssyni, þingflokksformanni Miðflokksins. Þeir ræða um alþjóðasamstarf, ESB, NATO, EES og fleira.
02.04.2021
Í þessum þætti er framhaldsviðtal við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins.
Stjórnandi þáttanna er Sigurður Már Jónsson
30.03.2021
Pólitík í vikulokin er ný hlaðvarpsþáttaröð á Miðvarpinu undir stjórn Sigurðar Más Jónssonar.
Gestur Sigurðar Más í þessum fyrsta þætti er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.