Fjóla & Golíat

Allur þingflokkurinn á Miðvarpinu

Fjóla & Golíat tóku á móti öllum þingmönnum Miðflokksins í sérstökum tveggja klukkutíma lokaþætti af þessari fyrstu seríu Miðvarpsins. Þetta er þáttur sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Fjóla og Golíat fara suður með sjó

Fjóla og Golíat fara suður með sjó og fara yfir stöðuna á Suðurnesjum. Gestir þáttarins eru Birgir Þórarinsson, Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir og Margrét Þórarinsdóttir.

Gunnar Bragi Sveinsson og Sigurður Páll Jónsson

Fjóla og Golíat taka á móti þingmönnunum Gunnari Braga Sveinssyni og Sigurði Páli Jónssyni. Þingstörfin eru komin á fullan skrið og umdeild mál ríkisstjórnarinnar flæða inn. Það er því margt að ræða.

Ólafur Ísleifsson og Þorsteinn Sæmundsson

Í þessum þætti taka Fjóla & Golíat á móti þingmönnum Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmunum, þeim Ólafi Ísleifssyni og Þorsteini Sæmundssyni. Þeir fara hér yfir málin í þinginu og svara aðsendum spurningum.

Karl Gauti Hjaltason og Jón Þór Þorvaldsson

Í þessum þætti ræða Fjóla & Golíat við Karl Gauta Hjaltason, þingmann Miðflokksins og Jón Þór Þorvaldsson, varaþingmann og formann Félags Íslenskra Atvinnuflugmanna. Rætt var um neyðaraðgerðir Miðflokksins, stöðuna í ferðaþjónustunni og margt fleira.

Anna Kolbrún Árnadóttir og Vigdís Hauksdóttir

Í þessum þætti ræða Fjóla & Golíat við Önnu Kolbrúnu Árnadóttur, þingkonu Miðflokksins og Vigdísi Hauksdóttur, borgarfulltrúa okkar í Reykjavík.

Framhaldsþáttur með Sigmundi Davíð og Bergþóri

Fjóla og Golíat fengu þá Sigmund Davíð og Bergþór aftur í heimsókn til að svara öllum þeim fjölmörgu spurningum sem þeim bárust úr síðasta þætti.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bergþór Ólason

Fjóla & Golíat er hlaðvarpsþáttaröð á Miðvarpinu þar sem Fjóla fær til sín góða gesti til að ræða málefni líðandi stundar. Gestir þessa fyrsta þáttar eru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og Bergþór Ólason, þingmaður. Stjórnandi þáttanna er Fjóla Hrund Björnsdóttir. Ekki missa af þessum áhugaverða fyrsta þætti Miðvarpsins.